Whistler euro radarvarinn minn reyndist mjög vel, borgaði sig margfallt upp en er ónýtur núna eftir 3 ár

Held að e-r náungi í ónefndri rafverslun hafi misst hann þegar hann var að redda mér festingu fyrir hann því radarvarinn virkaði ekki eftir það. Var samt tekinn einu sinni með hann á mb sprinter. Löggan var milli tveggja bíla þannig að ég sá hana ekki og kveikti á honum rétt áður en þeir skutu þannig að ég náði ekki að bremsa þannig að þetta er ekki 100% vörn.
Ég er síðan um daginn tekinn fyrir of hraðan akstur af myndavél í bíl sem stóð útí kanti því ég varð að flýta mér með systur mína til læknis. Hélt ég hefði sloppið en fékk bréf heim, 40k + 4 punktar

Bölvaði því vel að hafa ekki verið búinn að redda mér radarvara sem hefði án vafa bjargað mér þarna!
Þess vegna er ég farinn að grandskoða hvað er í boði núna og þetta er niðurstaðan:
Valentineone, escort passport 8500 x50 og bel pro rx65 virðast vera að berjast um 1. sætið. Glænýr samanburður hér:
http://www.radartest.com/article.asp?articleid=9090
Aðal gallinn við valentine virðist vera að hann gefur mjög mikið af fölskum viðvörunum, gaurarnir í þessu testi gáfust m.a.s. upp á honum og settu annan radarvara í rúðuna á þjóðvegunum en þeir eru kanski líka með soldið meira af svona driveby sjoppum við vegina heldur en hér

Hins vegar heilla þessar örvar mig soldið og ég hef séð þessa radarvara oft í porsche hér heima! Verðið sem hann er á þykir ekki heldur réttlæta frammistöðuna í testum. Virðist vera að brenna út.
Annar samanburður hér frá 2005:
http://www.radarbusters.com/support/product-tests/5.asp
Bel pro rx65 virðist vera að meika það núna en hef heyrt að hann sé frekar flókinn + það að ég veit ekki til þess að hann fáist hér heima.
Escort passport 8500 x50 hefur hins vegar alltaf verið yfirburða radarvari og hef aldrei heyrt neitt annað en gott um hann og ég hugsa því að ég persónulega versli hann.
Það er síðan lítið hægt að gera gegn laser nema það sé skotið á bílinn fyrir framan þig. Ef það er skotið á mann sjálfan þá hefur maður lítinn séns til að hægja. En mér skilst að það sé bara einn svona laser og einungis hægt að nota hann í góðu skyggni (ekki rigningu os.frv) af mótorhjólalögreglu.
Það eina sem maður getur í raun gert fram yfir góðan radar/laser vara til að vera þokkalegur gegn laser er að versla sér svona system sem á víst að vera "löglegt" að mér skilst:
http://www.radarbusters.com/products/bl ... efault.asp
Síðan er smá spjall hér um þetta frá kraftinum

:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ight=radar