#11
sveinn skrifaði:Hver borgar kostnaðinn af svona búnaði? Hver borgar fyrir tækið, uppsetningu þess og viðhald? Er það einstaklingurinn? Vitiði það?

Ég er alfarið á móti því að svona búnaður sé settur í fólksbíla, því þetta leysir ekki nema brot af vandamálinu. Ef hámarkshraðinn er stilltur á 100km/klst þá getur þú ekið á þeim hraða þar sem hámarkshraði er t.d. 30! Þetta leysir ekkert varðandi hraðakstur innanbæjar!
Kostnaðinum við búnaðinn yrði að sjálfsögðu klínt á bíleigendur eins og gert er við eigendur stórra bíla í dag.

Það er rétt að þetta er ekki nema brot af vandanum sem þetta leysir.


Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#12
Mercedes-Benz skrifaði:Það reyndar á að setja hraðatakmarkara í öll "stórhættuleg" ökutæki að mínu mati, og á ég hér við mjög mikið breytta fjallajeppa (Patrol á 44" og Hi-Lux á 38" sem dæmi) . Hvers vegna á slíkur bumbubarðabíll skítmixaður í Íslenskum bílskúr að fá að fara hraðar en 5 tonna ökutæki sem hannað er í bílaverksmiðju með öllum öryggiskröfum sem gerðar eru til slíkra ökutækja?

Það er hraðatakmarkari í Flutningabílum og ég tel hann sérstaklega nauðsynlegar í olíubílum. Varðandi rútur og aðra hópferðabíla eins og strætisvagna ( sem ég hef stundum ekið) sé ég ekki alveg hvers vegna þessir bílar eiga ekki að vera búnir slíkum búnaði sem stilltur er á hóflega ferð 90-100km í rútu og 80 í strætisvögnum. Það er 90 km hámarkshraði á Íslenskum þjóðvegum og 80 er hámark innanbæjar og þetta er bara fullnóg fyrir þessar græjur.

Því miður vegna þeirra launa sem í boði eru fyrir starfsmenn við akstur á Íslandi veljast stundum einstaklingar á svona stór ökutæki sem eru alls ekki starfi sínu vaxnir og alveg furða að þeir hafi yfir höfuð bílpróf þó ekki væri nema bara á fólksbíl. Vissulega er ekki átt hér við bílstjórastéttina í heild sinni sem státar líka af mjög vönduðum mönnum sem kunna sitt fag. En svona búnaður er fyrst og fremst hugsaður til að passa skussana og hinir líða fyrir það.

Ég er hinsvegar algerlega á móti því að svona búnaður verði settur í fólksbíla. lítið breytta jeppa, sendibíla, smárútur, pallbíla og önnur hóflega vaxin ökutæki upp í 3,5 tonn að heyldarþyngd.

Kosið var á móti í þessari kosningu.

Viltu ekki bara breyta jöklum landsins í vistgötur líka :twisted:
Volvo XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
Alpina B3 biturbo 2008 #101

#13
Benzboy skrifaði:Viltu ekki bara breyta jöklum landsins í vistgötur líka :twisted:
Ætlar þú að aka á 120km hraða uppi á jökli???????
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)