Bremsuvesen!!

#1
Ég er í vandræðum með bremsurnar í bílnum hjá mér ( C 200D ´95 ssk). Þetta byrjaði á því að bremsupedalinn datt niður í gólf og bílinn bremsaði mjög takmarkað, þá drap ég á bílnum og setti hann aftur í gang og þá var allt í lagi. Svo gerðist þetta aftur og aftur. Bílinn fór síðan að liggja utaní vinstra megin að aftan og allt í veseni.

Hvað er til ráða í þessu máli? Er höfuðdælan að stríða mér, eru stimplarnir í bremsudælunum orðnir fastir eða hvað er eiginlega að gerast?

kv.
Eyþór


C 200 diesel (W202)´94 ek. 470000
Alveg heil 75 hö.

lofttæming!

#4
Verð ég ekki að fara eins að og þú (jon) þegar þú lofttæmdir kerfið hjá þér, þ.e. láta vökvann leka í gegnum kerfið? Hvernig heppnaðist það annars, varstu alveg laus við allt loft af kerfinu?
C 200 diesel (W202)´94 ek. 470000
Alveg heil 75 hö.