Ef maður miðar við 17.000 EUR á innkaupsstað, en það er líklegasta dæmið sem kemur sem stofn til gjalda - allt tekið saman þegar búið er að bjóða í rétta bílinn o.s.frv,. Óhætt er að reikna með 15% lækkun, því að bílarnir sem við bjóðum í eru þess eðlis. það eru svona fjárráðin sem ég er að miða við hjá mér.
Stofn til aðflutningsgjalda: 1.257.345 ISK
Aðflutningsgjöld 1.012.477 ISK
Ýmis kostnaður við skráningu: 21.864 ISK
Samtals: 2.291.686 ISK
Hef verið að skoða marga bíla á þessu verðbili, bæði Benz og líka BMW E39 M5 - bíll sem ég er helvíti hrifin af
Er ég að vaða í villu, veit að 500E er draumur og þeir eru kannski aðeins ódýrari, en aftur á móti miklu sjaldgæfari á mobbanum - svo maður áttar sig ekki alveg á markaðnum. En benda verður á það að þeir eru eldri og kannski illseljanlegir til lengri tíma litið. Hvað segja Stjörnu menn við þessu
Vona að þetta fari ekki fyrir brjóstið á mönnum