Aðalfundur Mercedes-Benz klúbbs Íslands (MBKÍ) verður haldinn föstudaginn 30. október kl. 17:00.
Dagskrá:
• Kosning fundarstjóra og fundarritara
• Skýrsla stjórnar
• Reikningar lagðir fram
• Kosning varaformanns, gjaldkera, meðstjórnarnda og varamanns
• Kosning í nefndir
• Önnur mál
Nánari upplýsingar um staðsetningu og tíma verður að finna inni á spjallsvæði félagsmanna í MBKÍ undir
viewtopic.php?f=19&t=23870
Ef þú lesandi góður ert félagsmaður í MBKÍ en hefur ekki aðgang að spjallsvæði félagsmanna í MBKÍ þá endilega sendu okkur póst þ.a.l. í netfangið mbki @ mbclub.is.
Þeir sem hafa áhuga á því að bjóða fram til stjórnarsetu eru beðnir um að senda okkur tölvupóst í netfangið mbki @ mbclub.is með upplýsingum um nafn og kennitölu.
Þeir sem hafa áhuga á því að gerast félagsmenn og taka þátt í aðalfundinum, eða bjóða sig fram til stjórnar, er bent á eftirfarandi í lögum klúbbsins:
Grein 7.4.
- Stjórnarmenn skulu vera orðnir 18 ára og hafa verið félagsmenn í a.m.k. 1 ár.
Úr grein 9.
- Félagsmaður telst því aðeins gildur á aðalfundi að hann hafi greitt félagsgjald að fullu eigi síðar en þrem vikum fyrir aðalfund ár hvert.
Stjórn MBKÍ 2014-2015
Mercedes-Benz klúbbur Íslands
Netfang: vefstjorn hjá mbclub.is
User avatar
Re: Aðalfundur MBKÍ 2015
#3Búinn að laga linkinn
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Re: Aðalfundur MBKÍ 2015
#4Komst því miður ekki á fundinn
Vona að það hafi verið góð mæting
Vona að það hafi verið góð mæting
Benedikt Hans Rúnarsson
Re: Aðalfundur MBKÍ 2015
#5Sá fámennasti sem ég hef setið, 6 manns
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Re: Aðalfundur MBKÍ 2015
#6hjalti.g skrifaði:Sá fámennasti sem ég hef setið, 6 manns
Var það bara stjórn og búið? Reyndar eru 7 í stjórn með meðstjórnendum svo ekki hafa allir mætt
Ég komst bara ekki á þessum tíma, hélt upphaflega að þetta væri kl. 19 en sá svo of seint að þetta var kl. 17. Maður er augljóslega orðinn "creature of habit"...
Verð nú aðeins að gagnrýna það að fundurinn var ekki nógu vel kynntur.
Hefði talið að það hefði átt að senda út fréttabréf, ekki allir sem lesa tilkynningar á spjallinu eða Facebook. En svona er þetta nú.
Óska nýrri stjórn til hamingju með kosninguna og óska henni velfarnaðar í starfi
Benedikt Hans Rúnarsson