Tímakeðja W203 2005 vesen. Aðrir lent í svipuðu?

#1
Góðan daginn,

Þetta byrjar þannig að einn sem að ég þekki hérna í bænum lendir í því að Benzinn hans hoppar á tíma og keðjan hoppar yfir þegar hann er kominn í 180 þúsund, hann er með C230 2003 eða 2004, og hann lætur mig vita að ég ætti að fara að tékka á þessu vegna þess að það á víst að skipta um hana í 75-100þús KM. Ég hugsaði nú bara með mér "Ha djöfulsins rugl er það, það getur ekki verið".

Svo lendir frændi minn í því að C200 2005 hoppar einnig á tíma í 140 þúsund og þá fer ég að verða svolítið stressaður og ákveð svo loksins að láta skipta um hann skipti um eins og á að skipta um semsagt strekkjari og mátaði keðjuna í tannhjólin upp á að allt sé í lagi þar og þar af leiðandi. Sem að kostaði mig 150 þúsund, bíllinn minn er keyrður 121 þúsund þegar ég læt skipta um. Ég er með C200 Kompressor 2005 W203.

Svo ekki 2 vikum seinna slitnar keðjan hjá mér. Ég fer aftur á verkstæðið og læt kíkja á það. Þá kemur í ljós að keðjan hafi slitnað í miðum hlekk 10 hlekkjum frá samsetningu.

Svo fer viðgerðarmaður að skoða þetta og hringir í Bíladoktorinn sem að hann keypti varahlutana frá. Og þá segir hann að það eru 3 svona bílar út á plani hjá honum með sama vandamálið. Hann hringir svo í Öskju og þeir vita ekkert um þetta og að það eigi að vera nóg að skipta um keðjuna og það sem þarf bara eins og venjulega tímakeðju skipti. Hann hringir svo í vin sinn sem vinnur á flutningabíla verkstæðinu og hann röltir yfir og spyr karlana á gólfinu og þeir segja að þetta sé þekkt vandamál, að tannhjólin eru of léleg til þess en þeir gera þetta samt eins og venjulega skipit (s.s skipta ekki um tannhjól) þá er keðjan sem að var í orðin eitthvað pinku ponsu slök og er þá byrjuð að sverfa upp úr á milli tannana og ekki er þá hægt að taka eftir því.

Þannig að þá eru vafasemdir um það hvort að ég eigi að fá þetta bætt.

Spurningarnar mínar eru:

Er þetta þekkt vandamál? Ef svo er hefur ekki verið nein innköllun frá Benz sjálfum?

Ætti ég að fá þetta bætt?

Gæti ég borið fram þau rök að viðgerðarmaðurinn hafi athugað tannhjólin og metið þau í lagi og svo voru þau ekki í lagi og fengið þetta þá bætt?

Þetta er C200 W203 2005 árg. Keyrður 121 þúsund með M271 vélinni.


Re: Tímakeðja W203 2005 vesen. Aðrir lent í svipuðu?

#2
Hef heyrt af vandamálið með 203 og tímakeðjuvesen á C200 eða C230 station (man ekki nákvæmlega hvor gerðin það var :( ). Sá sem ég þekki lenti í því að keðjan fór í að mig minnir 130.000 km.
Það virðist ekki gilda sama "reglan" þar og áður með að menn "þurfi ekkert að pæla í tímakeðjunni" fyrr en nær dregur 200.000 km. :roll:

Hins vegar væri áhugavert að sjá hvort einhverjir af spekingunum, sem hafa vit og þekkingu á þessu, geti svarað þessu betur en ég.
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Tímakeðja W203 2005 vesen. Aðrir lent í svipuðu?

#4
Benni skrifaði:Hef heyrt af vandamálið með 203 og tímakeðjuvesen á C200 eða C230 station (man ekki nákvæmlega hvor gerðin það var :( ). Sá sem ég þekki lenti í því að keðjan fór í að mig minnir 130.000 km.
Það virðist ekki gilda sama "reglan" þar og áður með að menn "þurfi ekkert að pæla í tímakeðjunni" fyrr en nær dregur 200.000 km. :roll:

Hins vegar væri áhugavert að sjá hvort einhverjir af spekingunum, sem hafa vit og þekkingu á þessu, geti svarað þessu betur en ég.
Þakka fyrir svarið.
Þröstur skrifaði:Þetta er þekkt vandamál.
Já hef fundið það út. Veistu nokkuð hver réttindi mín eru gagnvart tryggingum?
cron