W124 - einangrun

#1
Góðan daginn kæru spjallverjar.
Núna er ég í þeim pælingum að hljóðeinangra bílinn hjá mér.
Hefur einhver gert þetta með einhverjum árangri ?
Skilst að besta efnið í þetta sé "dynamat" eða álíka.
Hef líka heyrt að fólk sé að setja eitthvað í brettin til að minnka "veghljóð", einhver sem hefur reynslu af því ?

Og einnig mér skilst að það sé ekki "húddeinangrun" í E220 bílunum, af hverju er það ? Og myndi það trufla eitthvað ef ég myndi setja það á ?

Takk fyrir


Mercedes Benz - E220

Pascal Pálsson
6945074

Re: W124 - einangrun

#2
Veit ekki hvort að húddeinangrun geri mjög mikið gagn, en E420 bíllinn hjá mér með minna veghljóði, ég tók einusinni hurðaspjald úr honum og þar bakvið var 1 mm þykk hljóðeinangrunarmotta, sem er ekki í E220.

Þetta sem menn hafa sett í hjólskálarnar er yfirleitt eitthvað teppi (eða í áttina að því) þannig að allir smásteinar og annað slíkt sem lendir í hjólskálunum gerir minni læti.

Myndi hanga aðeins á netinu um þetta allt saman, því mig grunar í þessum bílum sé mesti hávaðinn frá hurðunum.

http://mbworld.org/forums/e-class-w124/ ... etter.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Einhver umræða hér.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
cron