300E 1990

#1
Áskotnaðist þennan í vikunni.

Góður bíll til að bjarga.

Þessar eru af honum eins og hann var.
Og þessar eftir smá aðhlynningu. Vél komið í gang, settur annar geymir í, skipt um felgur og dekk, krómbogar á afturbrettum fjarlægðir, rennt í gegnum þvottastöðina á Draghálsi og farið með hann í skoðun. Þarf að laga bremsurnar að aftan (stirðar dælur)


Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: 300E 1990

#5
Takk fyrir þetta drengir.

Þetta var nú bara dagsverk, en það er meira eftir.

Og hann er bara ekinn tæpa 195.000 km. Ljúft að keyra hann.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: 300E 1990

#7
Hlynzi skrifaði:Þessir bílar hafa nú staðið ansi lengi þarna. Hvernig týpur eru hinir ?
Það virðist ekki skipta máli þegar W124 er annars vegar, þeir rísa gjarnan úr öskustónni og keyra sem aldrei fyrr :D :Driverauto:

Annars mjög huggulegt eintak sem þú hefur fundið undir setlögum þarna nafni. :D
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: 300E 1990

#8
Það er alltaf nóg af Benzum nálægt D&C.

Hann er ansi heillegur og gott að keyra hann.

Hann ber þess nú merki að ekki hafi verið hugsað um hann.

Þarf að laga afturbremsur og skipta um miðstöðvarelement. Einnig bremsurör að framan og nýtt vinstra frambretti.

Verður mjög gott eintak að því loknu. Sér ekki á innréttingunni.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: 300E 1990

#10
Jæja, þá er ég búinn að skipta um miðstöðvarelementið. Ekki vinna nema fyrir þolinmóða.

Ekki glæsilegt það gamla.
Og hér er nýja komið í.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.