Gírkassi með overdrive í Benz 309

#1
Sælir drengir, veit einhver um gírkassa sem ég gæti sett í Benz 309 árg 1989. Minn bíll er með 5 gíra kassa en agalega lággíraður og hámarkshraði um 80, þetta er húsbíll.
Heyrði af einum sem fann gírkassa úr einhverjum vinnuflokkabíl, sá var með overdrive og hann passaði beint í 309 og það var sko enginn smá munur að keyra. Minn bíll er með 5cyl 2.4 dísel.
Ef einhver veit um kassa væri gott að heyra um það.
drifið í mínum bíl er 2 og kvart hringur á drifskaftinu miðað við einn hring á dekkinu, er einhver von að finna drif með hærra hlutfalli ? ( 90 km drif)
kv, BB