Ég er búinn að leita talsvert í dag að einföldum hlutum í bílinn minn en virðist þurfa að fara á miðilsfund og biðja einhvern um að senda mér þetta hinumegin frá
Mig vantar loftsíu, kveikjulok og kveikjuhamar, ég er búinn að gá í Bílanaust, Poulsen Stillingu og hjá Doktornum en ekkert gengur.
Ég er reyndar ekki búinn að tala við Öskju en ég geri ráð fyrir að lítið sé til hjá þeim í svona gamlan bíl.
Hjá Doktornum var mér bennt a einn stað enn sem gæti átt loftsíuna en komst ekki í að hringja strax og var þá búinn að gleyma númerinu og klukkan orðin 18:30 svo ég kemst að því á morgun.
Vita snillingar Benz heimsins um fleirri staði til að leita á.
Kveðja
Gunnar Már