Fyrsti Benzinn, W123 250 - 1984

#1
Góðan dag

Ég var í dag að festa kaup á þessum roskna Benz, Þetta er sem sagt 1984 árgerð af 250 bíl.
þetta er fyrsti Benz sem ég eignast og miðað við aldur þá er hann bara nokkuð góður.
Hann er ekinn 138.000km og mér sýnist að ég sé þriðji eigandi á íslandi.
Bíllinn er fluttur inn 1987 og þá sýnist mér að hann hafi verið ekinn um 30.000km
Þannig að 100.000km síðan 1987 er ekki mikil notkun.
Ég reikna með að nota bílinn sem aukabíl á heimilið og verður gripið í hann ef með þarf.
Eflaust vita Benz sérfræðingarnir meira um þennan bíl en ég og væri fínt að fá að vita sem mest um bílinn.

Kveðja
Gunnar



Mercedes Benz 250 W123 1984

Re: Fyrsti Benzinn

#3
Til hamingju með flottan w123, fallegur litur á þessum bíl ( thristle green )

250 bíllinn er sjaldgæfastur af w123 seríunni, haltu vel í þennan hann verður mjög verðmætur í framtíðinni :tumbsup2:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: Fyrsti Benzinn

#5
Èg var nú ekki að leita að einhverjum dýrgrip til að kaupa, þessi var bara langbestur af þeim bílum sem ég skoðaði og var líka kominn á ellistyrkinn.
Það er alveg ótrúlega gott að keyra þennan 29 ára höfðingja.
Eitt sem ég er að spá í, þegar ég opnaði bensínlokið sá ég miða á þýsku sem benti á að nota 98 oktana bensín með blýi í.
Þarf eitthvað að spá í það, er ekki í lagi að nota þessa venjulegu drullu sem fæst á okurverði á öllum bensínstöðvum.

Takk fyrir hlý orð í okkar garð.


Kveðja
Gunnar Már
Mercedes Benz 250 W123 1984

Re: Fyrsti Benzinn

#6
Alpina skrifaði:138.000 km :shock: ............ vá hvað það er lítið
Þeim finnst bensínið reyndar meira en gott, það er jafn dýrt að keyra hann og það er leiðinlegt að keyra 200 blöndungsbíl.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: Fyrsti Benzinn, W123 250 - 1984

#9
Þá er þetta sami bíll, hann er með lítillega beygluðu húddi og annað fylgdi.
Sá sem èg keypti hann keypti hann fyrir tveimur árum og tók upp bremsukerfi frá a-ö.
Annað veit èg ekki til að hafi verið gert nýlega.

kveðja

Gunnar Már
Mercedes Benz 250 W123 1984