W210 rafmagns örðuleikar, með öðrum orðum geðveikt fjör!

#1
Er með smá rafmagns vesen í 1998 af W210 E-class.

Svo er mál með vext að topplúgan er stundum með leiðindi, ekki alltaf fer eftir dögum, en það lýsir sér þannig að hún stoppar með svona 4cm millibili þegar ég er að opna hana alveg, og svo get ég ekki lokað henni nema ýta takkanum eins og ég ætli að opna hana upp, og svo bara stoppa á réttum stað.

Svo er það stundum að ég ætla að loka rúðunni með auto-inu og þá fer hún aðeins upp, stoppar og fer aðeins niður, er samt allt í lagi ef ég færi hana upp svoldið sjálfur og noti auto í rest. Gerðist svipað þegar ég var að færa sætið aðeins til í dag, stoppaði og byrjaði að fara í vitlausa átt, en virkaði svo venjulega í næstu tilraun.

Og að lokum þá er það magasínið, það er eitthvað sambandsleysi einhvernstaðar frá því og í græjurnar, því stundum detta hátalarnir út vinstra megin, gerist oft þegar ég beygji til vinstri og á til með að lagast þegar ég beygji til hægri :lol: tengið við magasínið virðist alveg vera gott, er það þá ekki tengið aftaná græjunum sem er að klikka?


Með fyrirfram þökkum :)
Viktor Dagur


1998 Mercedes Benz W210 E55 AMG

Viktor Dagur Andersson
cron