Re: 300SEL 6.3, 1967

#51
Búinn að vera dunda mér aðeins í R22 undanfarið, smá breyting sem ég veit ekki hvort menn taka eftir. Þetta er kannski heldur ekki varanleg breyting, heldur bara tilbreyting :)

...alltaf gaman að upplifa bílana sína aðeins upp á nýtt!

[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/R22th1.jpg[/img]

[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/R22th2.jpg[/img]

[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/R22th4.jpg[/img]


Sveinn

Re: 300SEL 6.3, 1967

#52
Er hann ekki kominn á orginal koppana? Þ.e hringurinn og miðjukoppur. Flottara en nýrri gerðin af heilu koppunum.
Eyjólfur Karlsson
--------------------------------------
Mercedes Benz 250S 1968 R42095
Mercedes Benz 290GDT 1985 R16377

Re: 300SEL 6.3, 1967

#58
BaraBenz skrifaði:Flottur hjá þér.

Hvaða litanúmer er þetta á bílnum?
Alpina skrifaði:Magnaður bíll
Takk fyrir það! :)

Litanúmerið er 904 eða dunkelblau. Af einhverjum sökum hef ég samt alltaf kallað þennan lit bara "dunkel", en auðvitað er líka til dunkelgrau, dunkelgrün, dunkelrot o.fl... :lol:

Hreinn litur, dökkblár, sem allt of margir hafa kallað svartan þegar þeir tala um bílinn minn... :? :D
Sveinn

Re: 300SEL 6.3, 1967

#59
sveinn skrifaði:
BaraBenz skrifaði:Flottur hjá þér.

Hvaða litanúmer er þetta á bílnum?
Alpina skrifaði:Magnaður bíll
Takk fyrir það! :)

Litanúmerið er 904 eða dunkelblau. Af einhverjum sökum hef ég samt alltaf kallað þennan lit bara "dunkel", en auðvitað er líka til dunkelgrau, dunkelgrün, dunkelrot o.fl... :lol:

Hreinn litur, dökkblár, sem allt of margir hafa kallað svartan þegar þeir tala um bílinn minn... :? :D
Ástæðan að menn halda að þetta sé svart er að þú heldur bílnum í fullkomnum gljáa :tumbsup: Þessi litur er miklu svörtu í og ef menn halda þessum lit ekki vel ,verður hann frekar dull,allt annað enn þessi bíll :D
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

Re: 300SEL 6.3, 1967

#60
Þar sem ég eignaðist nýlega bæði upprunalegu ljósin sem voru á bílnum, gömlu koppana og baroque felgur, fannst mér tilvalið að prófa þær samsetningar af þessu sem koma til greina og búa til smá myndasyrpu til að bera þetta saman. Ég veit alveg hvað mér finnst flottast, en finnst samt gaman að geta breytt til og haft hann í mismunandi útgáfum svona eftir tilefni. Gömlu kopparnir og luktirnar gera hann pínulítið eldri útlits, en aftur baroque-inn gerir hann svolítið nýlegri.

Hér eru þær útgáfur af þessu sem mér finnst ganga upp (takið eftir að ég tók þokulugtirnar af þegar ég hafði hann með gömlu lugtunum);

(1) Gömlu luktirnar og gömlu kopparnir
[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/LL1.jpg[/img]

(2) Gömlu luktirnar og nýju kopparnir
[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/LL2.jpg[/img]

(3) Tvöföldu luktirnar og gömlu kopparnir
[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/LL3.jpg[/img]

(4) Tvöföldu luktirnar og nýju kopparnir
[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/LL4.jpg[/img]

(5) Tvöföldu luktirnar og baroque felgur
[img]https://dl.dropbox.com/u/1264580/R22/LL5.jpg[/img]

Hvaða útgáfa af þessu finnst ykkur annars koma best út? :roll:

Þarf reyndar kannski að endurtaka myndatöku af honum með baroque, því það var farið að rökkva aðeins og myndavélin vildi fara að nota flass... :(
Sveinn