W124 230E BSK

#1
Loksins fékk ég mér aftur Benz.

Gekk frá skiptum á þessum fyrir nokkrum tímum.
1992 árgerðin.
Beinskiptur.
Dökkgrár að lit.
Topplúga.
Tauinnrétting sem er vel með farin fyrir utan þessa týpísku rifu í bílstjóra sætinu.

Keyrður ekki nema 237 þús.

Þéttur og fínn gripur.

Svosem engin plön en að halda gripnum við og keyra hann.
En gaman væri að finn önnur afturljós og aðrar felgur.


Veit einhver hvort það séu sömu gormar í CE og Sedan?


Myndir
[img]http://a2.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos- ... 2988_n.jpg[/img]

[img]http://a1.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos- ... 5780_n.jpg[/img]

[img]http://a6.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos- ... 6221_n.jpg[/img]

[img]http://a8.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos- ... 2157_n.jpg[/img]


Atli Þór

Enginn Benz

Kíktu í golf - http://www.geysirgolf.is" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W124 230E BSK

#3
Jæja þetta samband byrjar vel.

Topplúgan hætti að virka
Síðan hætti rúðan bílstjóramegin að framan að virka líka og sama dag gaf pústið sig.

EN þetta verður bara lagað.

Síðan er eitthver víbringur á 110 km/klst.
Seinast breytt af geysir þann 01 Jan 2012, 22:39, breytt 1 sinni alls.
Atli Þór

Enginn Benz

Kíktu í golf - http://www.geysirgolf.is" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W124 230E BSK

#6
Benzari skrifaði::tumbsup2: Flott snjómynd Atli.

Hvernig gengur að laga þetta pikkelsi sem þú nefnir?
Takk fyrir það!

Þetta gengur og ekki gengur. Keyrt utan í bílinn hjá mér, fékk tjónið greitt úr tryggingunum.
Verður massaður og skoðað hvað verður gert eftir það. Ekki það tjónaður.

Samsveitungi minn ætlar að skipta um hjólalegu fyrir mig, sem kominn er tími á.

Er núna með auka framsæti í pörtum á stofugólfinu og næsta helgi fer í að púsla saman einu góðu framsæti, þetta sem er í er sigið og það bætir ekki bakverkina á akstri.


Annars stendur gripurinn sig eins og hetja. Er á naglalausum vetrardekkjum og hann hefur aldrei brugðist mér á leiðinni upp í Tungurnar.

Eins og það er nú þægilegt að taka þessi sæti í sundur að þá eru sleðarnir og stýringarnar alveg hundleiðinlegar og veiklulegar miðað við annars frábær smíðagæði W124.
[img]http://a5.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos- ... 7600_n.jpg[/img]
Atli Þór

Enginn Benz

Kíktu í golf - http://www.geysirgolf.is" onclick="window.open(this.href);return false;