Re: Mercedes-Benz 250D turbodiesel W124 árg. 1992

#12
Takk fyrir Comrade Björgvin. En sprautuverkstæðinu í Torrevieja var fúlasta alvara með þetta verð. Hefði sennilega bara verið 1.000 eur. ef ekki hefðu verið öll hliðarplöstin til að taka af, pússa og sprauta í öðrum lit. Á dögunum var ég að aðstoða íslenska konu að láta sprauta hennar bíl (renómegann 2002) og kostar það 900 eur. á sama verkstæði.
Kveðja,
Sveinn Arnar.
Mercedes-Benz 280SE 1984
Mercedes-Benz 250D turbo 1992
Mercedes-Benz E300 turbo diesel 1999
Mercedes-Benz C180 Elegance 2001 Seldur

Re: Mercedes-Benz 250D turbodiesel W124 árg. 1992

#13
BaraBenz skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði: ósammála.

Hef átt nokkra w124 og mér finnst sjálfskiptingarnir í þeim öllum vera leiðinlegar í samanburði við t.d Range Rover p38 sem ég átti. En ég get nú ekkert fullyrt neitt um þetta.. bara mín reynsla.
Hafa þeir þá ekki bara allir verið með stíflaða sjálfskiptisíu (skiptingin verður hörð).

Mín reynsla er sú að síðan í '80 módelinu af W123 og nýrri sem ég hef átt hafa verið mjög skemmtilegar skiptingar. Ekkert síðri en ZF skiptingin í Range Rover.

"4 speed ZF4HP22-E automatic (the same transmission was used by many 1990’s BMWs, Mercedes’, and Volvos) "
Gæti verið.

Ég er líka stundum bara svo ósammála þeim hvenær þeir skipta um þrep :lol:

Og í þeim nýjasta fer hann niður í 1 þrep áður en hann fer í 3ja þrep. Glæsilegt það.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: Mercedes-Benz 250D turbodiesel W124 árg. 1992

#16
pattzi skrifaði:Þessi er flottur ertu staðsettur á urb lamarina held að það sé skrifað svona .
Þetta er ekki í urb. La Marina, en þú ert ekki mjög langt frá því (er í sama héraði). Myndirnar voru teknar í urb. Las Mimosas, Orihuela Costa. Ég bý í næsta hverfi við, þ.e. Playa Flamenca.
Kveðja,
Sveinn Arnar.
Mercedes-Benz 280SE 1984
Mercedes-Benz 250D turbo 1992
Mercedes-Benz E300 turbo diesel 1999
Mercedes-Benz C180 Elegance 2001 Seldur