Samgöngusafnið í Stóragerði

#1
Sælir

Er að vinna við nýtt bílasýningarhús þarna í Stóragerði þar sem hitt er orðið troðfullt hjá honum.
Auðvitað kíkti ég á safnið og bílana sem eru óuppgerðir hjá honum og svona en varð fyrir smá vonbrigðum þar sem að það er ekki einn einasti Benz á sýningunni :shock:
Þetta er alveg rosalega flott safn nefnilega og mjög vel sett upp og allt það en það er náttúrulega gengur engan veginn að það sé engin Benz þarna hjá þeim.
Það eru hinsvegar nokkrir Benzar þarna í samansafninu hjá honum sem er óuppgert, þó aðalega rútur eða svona sendiferðabílar eða hvað ég á nú að kalla það, þórr það sé nú einn W124 þarna hinvegar.
Hérna ætla ég að setja myndir af þessum bílum, þau ætla nú að láta mig fá allar upplýsingar af þessum bílum á mánudag og set ég þær hérna inn til gamans svona

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri015.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri009.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri011.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri010.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri001.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri003.jpg[/img]
Smá rifa í þakinu á þessari rútu
[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri002.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri004.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri005.jpg[/img]
Þessi er lygilega vel með farinn að innan en því miður náði ég ekki mynd af því
[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri006.jpg[/img]

[img]http://i1198.photobucket.com/albums/aa4 ... eri007.jpg[/img]

Svo ætla ég líka að segja svona í leiðinni að mig langar rosalega að sjá Benz þarna inni og þau segja nú það sama þarna og þess vegna ef einhver á nú Benz sem hann vill láta frá sér þangað eða þess vegna hafið lítið að gera með hann þá myndu þau alveg pottþétt taka við honum þar sem að það eru bílar hjá þeim sem fólk hefur lánað þeim bara til að hafa á sýningunni.
Mæli samt eindregið með því að kíkja á þetta safn ef þið farið í frí í sumar og af einhverjum ástæðum farið í Skagafjörðinn, veit ekki einu sinni af hverju ég hef aldrei farið þangað áður þar sem ég bý 20 mín frá :?

Óli


Re: Samgöngusafnið í Stóragerði

#5
Ég kom við þarna um síðustu helgi og varð ekki fyrir vonbrigðum. Safnkosturinn og aðstaðan er til fyrirmyndar og ekki skemmir fyrir að staðarhaldarar eru að ráðast í stórmannlegar framkvæmdir til þess að stækka sýningarskálann.
Renault Megane Sport Tourer árg. 2012
Porsche 928 S4 árg. 1991
Porsche 924 árg. 1982

Re: Samgöngusafnið í Stóragerði

#6
Þetta virðist vera spennandi safn að skoða.
Hvernig væri að hafa árlega grillferð í lengri kantinum á næsta ári og skreppa norður og kíkja á staðinn? :idea:
Þá mætti helst ekki vera mikið um vegaviðgerðir á leiðinni svo gömlu jálkarnir taki sér ekki óþarflega langar pásur. :twisted:
Teddi :mercedes:

Re: Samgöngusafnið í Stóragerði

#7
Hef komið á þetta safn í Stóragerði - sem er til fyrirmyndar (að undanskyldu Benz-leysinu)
Mæli með því að þið kíkið á þetta safn, ef þið eruð á ferð um Skagfjörðinn í átt að Hofsósi. :tumbsup2:

Hérna er svo síðan þeirra á FB sem er uppfærð reglulega og gaman er að fylgajst með:
http://www.facebook.com/profile.php?id=100000104049023" onclick="window.open(this.href);return false;
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Samgöngusafnið í Stóragerði

#9
sveinn skrifaði:Sammála Jóni að þetta er flott safn, og þess virði að skoða :clapping:

Og verður það kannski ekki síst þegar nýja skemman verður klár og full af bílum.

...en er litli 411 Unimog-inn ekki þarna ennþá?

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/misc/Un ... agerdi.jpg[/img]

Þetta væri bíll sem væri gaman að gera upp...
Haha jú, hann er þarna ennþá, tók einmitt mynd af honum bara svona til að eiga, held samt að hann verði ekki gerður upp næstu árin, þau bæta við svona 1 bil á ári, og hann er með 10 bíla inná verkstæði núna, einn eiginlega tilbúin og annar í uppgerð, og hinir bíða eftir því, svo fyrir aftan skemmu eru líka svona tíu bílar og eftir því sem mér var sagt þá eru þeir næstir inn eftir hinum.
Þannig því miður eru fullt af gullfallegum bílum sem verður langt í uppgerð :( Þau verða helst bara að vinna víkingalottóið svo þau geti mokað inn nýjum bílum og sérstaklega keypteinhvern benz þarna inn :mercedes:
cron