Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#34
Balli... skrifaði:hvernig er staðan á þessum höfðingja?
Staðan er bara góð. Ekkert búið að gera í honum undanfarna tvo mánuði samt. En markmiðið er heldur ekki að vinna hann hratt heldur gera það vel :D
Það voru teknar nokkrar helgar í honum í vetur þar sem var farið í eitt og annað. Búið að skipta út t.d báðum "skálunum" í skottinu (semsagt skálunum sem eru með vatnstöppunum/vatnsaffalsslöngunum í) Það var komið slatta ryð í þær og hefði eflaust verið hægt að sjóða bara einhverja búta yfir það en við ákváðum að fara lengri og dýrari leiðina og bara skipta skálunum alveg út, teknar burt bara á orginal suðupunktunum og nýjar soðnar í, mjög vel gert.

Það er líka búið að skipta út brettaboganum bílstjóramegin að aftan, það var gert með nýju viðgerðarstykki. Þá á bara eftir að skipta út brettaboganum farþegamegin að aftan og þá ætti gott sem allt ryð að vera búið.

Ég tók nú slatta af myndum af verkinu en hef ekki hugmynd um hvar þær eru núna, þarf að finna þær og gefa mér tíma í að uppfæra þetta með myndum.
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

#39
Heyrðu, það vill nú svo til að staðan á þessum er nokkurnveginn einsog seinast, hann kúrir bara í geymslu og bíður áframhalds. En ég er einmitt kominn með aðstöðuna mína í lag núna og reikna því með að þessi fari þar inn í næsta mánuði og bara halda áfram :D
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06