Beinskiptir benzar...?

#1
Hvernig er það, er mikið af beinskiptum benzum í gangi hér og bara yfir höfuð ? Ég veit ekki afhverju ég hélt að benz væri oftast sjálfskiptir og eftir að ég hef verið að kynna mér málinn er ég að rekast á þá beinskipta og er orðinn veikur fyrir því að eignast einn slíkann. Bíl sem hefur allt sem ég vill, afturhjóladrif, beinskiptur og þýskur. (ekki vw eða skoda, alvöru bíl)


Þorsteinn Ingólfsson
661-3511


Teip reddar þessu...


M Benz E220 ´94 Sportline

Re: Beinskiptir benzar...?

#2
ég átti einusinni E220 sem var bsk. átti hann meira að segja á sama tima og ég átti bílinn þinn áður en hann stoppaði. það var þræl góður bíll.


benz eru held ég allveg örugglega pottþétt sérpantaðir beinskiptir
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

Re: Beinskiptir benzar...?

#4
Ég er búinn að eiga 3 beinskipta. Fyrst M102, 2.0l 190 sem var með 4 gíra Benz kassa sem var rustl að mínu mati, því næst átti ég W124 OM606 TE300 disel með 5 gíra Getrag kassa og núna á ég 190E M103 3.0 með sama Getrag 5 gíra kassa.
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: Beinskiptir benzar...?

#7
Beinskipting er standard búnaður í flestum minni Mercedes-Benz bílum og hefur alla tíð verið. Langflestir bílar sem hingað til lands hafa hinsvegar verið pantaðir í seinni tíð hafa verið pantaðir sjálfskiptir.
Ég er búinn að eiga marga beinskipta Benza og mér hefur oft líkað þeir vel. Mér finnst til dæmis beinskiptur W123 bíll skemmtilegri en sjálfskiptur. Í dag ek ég daglega á 2007 árgerð af A200CDI sem er með 6 gíra beinskiptingu, sem ég á sínum tíma pantaði í Öskju og bað um að fá hann ekki sjálfskiptan... Ég sé ekki eftir að hafa pantað bílinn svona. Hann er svaka skemmtilegur.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Beinskiptir benzar...?

#8
Átti beinskiptan W124 230E sem upphaflega var sjálfskiptur en einhverntíman á "lífsleiðinni" hafði einhver skipt um gírkassa. Bíllinn var með ASD og hreint út sagt svínvirkaði þó frekar ljótur og ómerkilegur væri 8)

Er sjálfur alltaf á sjálfskiptum og finnst það þægilegra innanbæjar.... :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Beinskiptir benzar...?

#9
ég á beinskiptan S-class.... toppiði það :lol:

En já það blundar einmitt í mér svona bsk fettish.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: Beinskiptir benzar...?

#10
ég var allveg fastur á því að sjálfskipting væri staðalbunaður í benz en þeir beinskiptu væru sérpantaðir. eins og t,d ökukennslu benzarnir..

en maður á ekki að fullyrða fyrr en maður hefur staðreyndirnar á hreinu. svo ég byðst afsökunar á því að hafa sagt að þeir væri staðlaðir með ssk
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur