Björgvin skrifaði:Hef nú nokkrum sinnum séð þennan hérna á rúntinum í Keflavík og þessum er bara keyrt svo fólk geti notið þess að skoða bílinn... Engin spyrnulæti á þessum greinilega

Æðislega fallegur bíll...
Ég viðurkenni nú alveg fúslega að ég hef nú svekkt þá nokkra hérna (VTi, Eclipse Turbo & OPC) kemur mér verulega á óvart þessi hlunkur...
En annars hef ég reynt að temja mér TAXA-akstur á þessum, enda er þetta slíkur vagn að það er EKKERT gaman að gera eitthverjar dobíur þó að vissulega sé aflið til staðar, ég gerði eina tilraun til að skutla mér út úr hringtorgi og þetta er bókstaflega eins og flotbryggja, enda klettþungt og ekkert gaman að þessu svona...
Helst vildi ég að ASC/ABS væri í 100% lagi, því að það er enginn spólvarnar-takki

þá er maður alveg safe á því að vera ekki eitthvað að dunda sér á honum
Er vissulega fúll samt með þessa hönnun á driflínu, GUIBO á báðum endum ??? TIL HVERS ??? er drifið kannski svona veikt í þessu að þessa er þörf ???
*edit* ég þakka hrósið annars, verulega gaman að því að fólk tekur eftir honum
fór í albúmið hjá þér og sá W140 S320... getur verið að ég hafi verið að rekast á þig hérna á rúntinum um daginn ( HID KIT

) ???
*edit2*
fór svo aftur að skoða albúmið og rakst á W123 sem að ég hef séð af og til í skemmunni hjá Jóni Sveins, hvað er í gangi með þann bíl ???