Gangtruflanir í E 280 '94

#1
Ég er í stökustu vandræðum, var að fara með bílinn í sprautun þegar hann vildi ekki uppá kerruna!
Bíllinn rétt drullast í gang en gengur svo illa að það er ekki hægt að keyra hann.
Áður en ég fór með hann inn á verkstæði fyrir 2 mánuðum þá var alltaf smá hægagangstruflun í honum en ekkert alvarlegt.
Bíllinn virðist brenna eldsneytinu afar illa og sprengir framhjá.
Er þetta nemadót eitthvert? er einhverleið að komast að því án þess að lesa af honum?
Ég prófaði að taka neman úr sem er framan á vélinni ég held að hann lesi snúningin fyrir kveikjuna og það breytti engu.

öll ráð vel þeginn

einnig vil ég auglýsa eftir báðum frambrettunum og þá þessum helvítis nema sem er bilaður

hrannar


Re: Gangtruflanir í E 280 '94

#5
hr.annar skrifaði: ef hreyfillinn hefði veikjulok þá væri ég ekki í þessum vandræðum heldur væri ég að kaupa nýtt kveikjulok
Þú ert svona klár..........

Sennilegast er bíllinn bara orðinn rennblautur á kertum eftir að hafa verið settur í gang sjálfsagt ótal sinnum meðan þú hefur verið að brasa í honum og aldrei fengið að ganga þar til hann hitnar. Flestir bílar sem hafa beina innspítingu verða að ganga í nokkrar mínútur svo þetta gerist ekki, raf-innspýtingar gefa soldið hraustlega af eldsneyti fyrstu sekúndurnar og fái vélin ekki að volgna eða ganga smá þá gerist þetta og bíllinn fer ekki aftur í gang fyrr en hann hefur fengið ný kerti.

Það er smá séns að ef þú kemur honum enn í gang að reyna að halda honum á háum snúning þar til hann nær að hósta þessu úr sér. Ef hann vill ekki í gang þá er eini sénsinn að standa hann í botni meðan þú startar því þá fer talvan í "clear flood" mode og gefur nær ekkert bensín fyrr en hann tekur við sér.

og ps, "neminn" er ekki nemi, þessar vélar hafa breytilegan knasttíma og þú ert sennilega bara búinn að gera villumeldingu til tölvunnar með því að taka segulrofann sem breytir knasttímanum fremst á heddinu úr sambandi.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722