Re: Hvaða bíll er þetta ?
#21Sælir
Seinast breytt af Björgvin B þann 31 Maí 2012, 06:40, breytt 1 sinni alls.
helvíti er það !Björgvin B skrifaði:Sælir félagar !
ég er búin að vera skoða það að kaupa þennan rauða undanfarna daga, eftir að hafa talað við marga menn og velta þessu ýtarlega fyrir mér þá er ljóst að ekki verður af þessum kaupum !
Rúnar Sigurjónsson maður sem ég treysti best til að meta gamla Mercedes Benz bíla segir þennan bíl vera afar illa farinn og það verði gríðarlega dýrt að takast á við þessa uppgerð, það er með trega sem ég gef þetta upp á bátinn, faðir minn keypti bílinn nýjan í Ræsi og er hann því tengdur mér, svona fer þegar ekki er hugsað nógu vel um hlutina. Sorglegt dæmi um bíl sem var í mjög góðu standi fyrir ekki svo löngu síðan.
Ég gaf þér upp nafnið á eigandanum (sá er átti bílinn síðast þegar ég vissi) og slóðina á símanúmerið hans. Hringdu bara í hann !grill skrifaði:Veit einhver hér hver á bílinn í dag, mig langar að eiga við hann orð!