Mercedes Benz 300CE árg.1990

#1
Mercedes Benz 300CE árg.1990
Ég var að kaupa mér minn fyrsta bíl og þar með minn fyrsta Benz :mercedes:
Um er að ræða 300CE árg. 1990, fluttur inn frá hollandi 2000 þá keyrður 113.þ km, er núna keyrður 246.þ km.

Aukahlutir:
Sjálfskipting
Leður
Toplúga
Hiti í sætum
Armpúði
Rafmagsloftnet
Rafmagsrúður (aftermarket)
Fjarstýrðar samlæsingar
Filmur í afturrúðum
Miðstöð
Loftflautur :wink:

Myndir:

[img]http://img822.imageshack.us/img822/5564/img4076hs.jpg[/img]

[img]http://img651.imageshack.us/img651/3662/img4078kz.jpg[/img]

[img]http://img98.imageshack.us/img98/6404/img4087r.jpg[/img]

[img]http://img853.imageshack.us/img853/183/img4093l.jpg[/img]

[img]http://img51.imageshack.us/img51/1718/img4096m.jpg[/img]
Seinast breytt af Vidir þann 19 Des 2011, 00:52, breytt 12 sinnum alls.


Mercedes Benz 300CE 1990
Víðir Hólm Ólafsson
S: 662-3118

Re: Mercedes Benz 300CE árg.1990

#7
Nokkrar fréttir af bílnum:
Í byrjun ársins lét ég setja krómstúta á pústið

[img]http://img231.imageshack.us/img231/2905/09092011036.jpg[/img]

Vegna dráttarkróksins þarf pústið að koma út á ská og það pirrar mig, þaning planið er að taka krókinn af.


Í vor tók ég eftir því að það var kominn olíu blettur í bílastæðið heima, þanning ég fór með hann í greining og það kom í ljós að heddpakkning var farinn. Svo þá lét ég skipta um hana í lok sumarsins.


Ég hafði séð mynd af vélinni úr Brabus 300CE og sá að þar var ventlalokið rautt

[img]http://img535.imageshack.us/img535/8191 ... engine.jpg[/img]

Og þá ákvað ég upp á djókið að mála mitt rautt með það var verið að skipta um pakkninguna hjá doktornum. Og hérna er afreksturinn

[img]http://img819.imageshack.us/img819/3593/09092011032.jpg[/img]


Svo var tekin skemmtilegur rúntur í vikunni þar sem mælirinn datt í 250.000 km:

[img]http://img16.imageshack.us/img16/2023/04092011012.jpg[/img]

Til gamans má geta að 250.þ km eru 6,2 hringir í kringum jörðina og 65% af leiðinni til tunglsins.
Seinast breytt af Vidir þann 09 Sep 2011, 17:02, breytt 1 sinni alls.
Mercedes Benz 300CE 1990
Víðir Hólm Ólafsson
S: 662-3118

Re: Mercedes Benz 300CE árg.1990

#8
Vidir skrifaði:
Til gamans má geta að 250.þ km eru 19,6 hringir í kringum jörðina og 65% af leiðinni til tunglsins.
Ummál jarðar um miðbaug er talið vera 40,075.017 km svo þetta eru nú bara 6,2383 hringir. Það er svo sem alveg nóg. :twisted:
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Mercedes Benz 300CE árg.1990

#9
BaraBenz skrifaði:
Vidir skrifaði:
Til gamans má geta að 250.þ km eru 19,6 hringir í kringum jörðina og 65% af leiðinni til tunglsins.
Ummál jarðar um miðbaug er talið vera 40,075.017 km svo þetta eru nú bara 6,2383 hringir. Það er svo sem alveg nóg. :twisted:
Úbs :oops: Tók þvermál miðbaugar en ekki ummál.
Mercedes Benz 300CE 1990
Víðir Hólm Ólafsson
S: 662-3118
cron