Töluvert síðan þetta hefur verið updateað hjá mér. Staðan er nú sú að þessi var kominn á númer og fékk fulla skoðun í sumar. Svo hefur eitt og annað verið gert í gegnum mánuðina. Nýjir bremsuklossar, rúðuþurkumótor og eitthvað svona smotterí hér og þar. Reyndar líka komið nýtt(notað) húdd og grill á hann.
Svo var ráðist í stærsta verkefnið hingað til síðastliðna helgi. Ég sá lítinn riðblett gægjast undan afturrúðupakkningunni fyrir nokkrum vikum síðan, sem var auðvitað til þess að ég þurfti endilega að rífa afturrúðuna úr og ætlaði mér að laga hann

. Það kom mér reyndar ekkert á óvart hvað beið mín, svona miðað við ástandið á hillunni að neðanverðu. Þetta var orðið alveg hraustlega götótt og illa farið.
Þetta var hugsað í smá stund og ég komst að því að eina vitið væri að gera þetta almennilega og varð mér úti um algjörlega heilt varahlutastykki, sem ég lét sandblása og ekki rið til í því stykki. Svo fékk ég félaga minn til að ráðast í að skipta um þetta með mér, hann er algjör fagmaður þegar kemur að svona vinnu.
Allar mælingar sem voru gerðar stóðust algjörlega 110%, það var semsagt gert til að tryggja að stykkið væri nákvæmlega í einsog það ætti að vera.
Gamla hillan frekar ljót
[img]
http://img403.imageshack.us/img403/3875/hillan.jpg[/img]
Þessa mynd tók Björgvin B þegar hann kíkti í heimsókn til mín fyrir nokkrum vikum.
[img]
http://img696.imageshack.us/img696/295/img3908small.jpg[/img]
Hillan komin í og allt frágengið
[img]
http://img80.imageshack.us/img80/2000/i ... zsmall.jpg[/img]
[img]
http://img440.imageshack.us/img440/3023 ... 7small.jpg[/img]
Næst verður farið í að laga hjólbogana að aftan, svo endar þetta sennilega allt með sprautun fyrir sumarið, svona allavega reiknað með því.