á miðvikudagskvöldið setti ég fordinn inn í bilsskúr því það var 9stiga frost herna á stokkseyrabakka allt í góðu með það. bíllinn hlýr og góður á fimmtudagsmorguninn
þegar ég þurfti að mæta á fund niður á selfossi. oki.. ég opna bílskurshurðina og þar blasir við mér meters hár skafl, ég eitthvað SHIT ekki með skóflu eða neitt.. þannig að ég bakka fordinum allveg innst í skúrinn og stend hann út með tilheyrandi látum og stoppaði langt út á götu, oki fínt, ég næ að jugga honum framm og aftur út úr götuni og bruna í skafrening og skafrenningssköflum á selfoss þannig að bíllinn varð allveg hvítur. og stend hann á þrjóskuni inn á bílastæðið þar sem fundurinn var haldinn og drep á. þetta var um 8leitið um morguninn. svo kem ég út af fundinum um hálf eitt leitið og finn ekki bílinn
þá koma þeir aftur loksins, og þeir sem þekkja ford mustang þá er ekki gert ráð fyrir því að þetta syti fast einhverstaðar (ótrulegt en satt alltaf bilað eða fast)
þannig að þeir bundu í hásinguna og yfir jafnvægisstöngina að aftan og kippa mér upp úr förunum með þessum lika þvíliku látum. henda mér næstum á annan bíl og keng begja jafnvægisstöngina og rífa bremsuleyðslurnar í sundur.
oki allt gott og blessað með það. þeir komu svo til mín upp að bilnum og sögðu mér það að bíllinn yrði að vera bara þarna inn á miðju bílastæði framm á vor eða eitthvað þannig að ég drap bara á og læsti bilnum og labbaði af stað heim til mömmu.
ekki í neinum fatnaði til að rölta í þessu veðri. svo þegar ég var hálfnaður þá buðu þeir mér far til mömmu. oki.
ég kemst heim til mín um kvöldið og var það dásamlegt
svo í morgun var hringt í mig frá bænum og mér sagt að færa þennan dall í burtu eða þeir ætli að ryðja honum upp í skafl, svo ég fæ far á selfoss og set bílinn í gang og er loksins ýtt upp (var buið að moka í kringum bílinn en þó aðalega yfir bílinn)
og kemst út á austurveg. en þá þurfti endilega að verða árekstur fyrir framan mig. svo ég sat fastur þar í góðan klukkutima (gat ekki bakkað því bíllinn spólaði sig strax á kaf)
loksins var mér ýtt upp eftir að það var buið að draga druslurnar frá og allt suðurland var farið að flauta á mig þarna (datt engum til hugar að ýta við mér)
svo loksins kemst ég af stað og á stokkseyri en hélt ég yrði ekki deginum eldri því bíllinn skalf og hristist og leitaði í allar áttir eftir árangur gærdagsins
þannig að nuna er ég bíllaus því benzinn er í en í viðgerð í svona frágang og yfirfærslu til að hafa hann góðan.
ekkert hægt að nota þessa forda á veturnar. svo þar að auki snjóar inn í bílnum þó svo það sé sól og enginn snjókoma..
shit
einhverjir sem hafa lent í svona æfintýrum í gær og í dag?