Þórður A. skrifaði:gamall sjúkrabíll???
Þetta er fyrrum sjúkrabíll á Akureyri með bensínvél hélt að hún væri með beinni innsp. ekki viss, hann er sjálfskiptur. Eftir sjúkrabíls þjónustuna var hann notaður sem tækjabíll hjá slökkviliðinu á Akureyri. Veit ekki um afdrif hans eftir það. Sá hann síðast uppi við Kárahnjúka (vinnubúðirnar).
Svo er til einn sem er kolsvartur að lit sá er líka með bensínvél og er fyrrum sjúkrabíll á Eskifirði, en er nú líkbíll þar.
Á sjálfur svona bíl 5cyl disel m/stt turbo og millikæli, frábær ferðabíll ekki húsbíll, smellir upp svefnaðstöðu á 5 mín 140x200 en samt er pláss til umsvifa fyrir framan.
Þessi bíll er fyrrum sjúkrabíll á Seyðisfirði, en er nú í Neskaupstað og nafnið á honum er
LJÓTUR.
Allir þessir bílar eru árg. 86/87. Held að þeir hafi verið fjórir í upphafi en einn hafi lent í hafaríi og skemst.