Verksmiðjunúmer bílanna

#1
Sælir meistarar ég mætti á síðustu samkomu þann 26 nóv á Mercedes Benz 190 E árgerð 1983 en samkvæmt skráningarskírteini er hann nýskráður hér á landi 01.01.1983. ég er með verksmiðjunúmerið sem er WDB20102410007133 er hægt að sjá í þessu númer hvað hann var í framleiðslunni??? Samkvæmt ykkar upplýsingum þá hófst framleiðsla eftir 29.nóvember 1982 þannig að þetta hlýtur að vera með fyrstu bílum. Getur einhver tjáð mér hvernig lesa má út úr númeri þessu eða bennt mér á stað þar sem það er hægt?? :?:


Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

#2
á þessu sést að þetta er 190 bíll með m102 mótor og svo seríal númerið á bílnum, benz voru ekki farnir að láta fylgja með framleiðsludaga á þessum tíma,

allir innfluttir bílar sem koma ekki inn nýjir af verksmiðju fá 01.01 það ár sem þeir eru smíðaðir, eins og þú vonandi veist er 01.01 nýársdagur og það eru engir bílar nýksráðir þann dag..
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

#5
ivar skrifaði:á þessu sést að þetta er 190 bíll með m102 mótor og svo seríal númerið á bílnum, benz voru ekki farnir að láta fylgja með framleiðsludaga á þessum tíma,

allir innfluttir bílar sem koma ekki inn nýjir af verksmiðju fá 01.01 það ár sem þeir eru smíðaðir, eins og þú vonandi veist er 01.01 nýársdagur og það eru engir bílar nýksráðir þann dag..
Það eru bara menn sem vita hvað 201-024 þýðir sem vita þetta.

Gera það ekki enn...

Að vísu á að vera hægt að lesa framleiðsluár út úr framleiðslunúmeri bíla sem framleiddir eru fyrir Ameríkumarkað að svokölluðu VIN númeri, en það verður að vera hægt samkvæmt lögum þar í landi. Slíkir bílar eru yfirleitt með tvö númer í kerfum Mercedes-Benz, þetta Ameríska VIN númer og svo hið Evrópska FIN númer. Evrópubílar eru bara með FIN númer og það er ekki hægt að lesa neinn aldur út úr þeim númerum. Til að gá að smíðadegi þarf umboðsaðili að fara inn í likilorðavarið kerfi hjá MB og gá að þessum degi. Til er eitthvað af vefsíðum þar sem þessar upplýsingar er einnig hægt að finna. Man ég þá eftir þessari Rússneskru klúbbsíðu þar sem hægt var að finna takmarkaðar upplýsingar um svona, en hversu réttar þær voru skal látið kjurt liggja.

http://www.mbclub.ru/mb/vin/?lng=eng



Þegar þetta framleiðslunúmer WDB20102410007133 er sett inn í FDOK kerfi Mercedes-Benz kemur á daginn að bíllinn er afgreiddur út úr verksmiðjunni 17.02.1983. :wink:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#6
JBV skrifaði:
Þröstur skrifaði:WDB20102410007133
Þetta reyndar segir manni að bíllinn er með fyrstu bílum.


Hérna er síða sem getur afkóðað mörg af þessum verksmiðjunúmerum
Þá væntanlega númer 7133 í röðinni af 190 Benzinum frá upphafi eða hvað?
Án þess að þekkja það upp á 100 að þá er það mín tilfinning eftir margra ára vinnu með Mercedes-Benz bíla að þetta geti verið rétt. Þetta er sennilegast bíll númer 7133 af 201 boddýinu.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#7
já þetta eru skemmtilega upplýsingar, 17.02.1983 ok ég vissi ekki að það kæmi sjálfkrafa 01.01.1983 ef bíllinn væri ekki fluttur inn nýr frá verksmiðju. En það sem er kannski merkilegast að það eru örugglega ekki mjög margir sem eru svona góðir og með fyrstu framleiddu bílunum af w201 gerð. Nr 7133 er nú bara gott m.v að það voru framleidd c.a. 1.900.000 stykki :D
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk
cron