ivar skrifaði:á þessu sést að þetta er 190 bíll með m102 mótor og svo seríal númerið á bílnum, benz voru ekki farnir að láta fylgja með framleiðsludaga á þessum tíma,
allir innfluttir bílar sem koma ekki inn nýjir af verksmiðju fá 01.01 það ár sem þeir eru smíðaðir, eins og þú vonandi veist er 01.01 nýársdagur og það eru engir bílar nýksráðir þann dag..
Það eru bara menn sem vita hvað 201-024 þýðir sem vita þetta.
Gera það ekki enn...
Að vísu á að vera hægt að lesa framleiðsluár út úr framleiðslunúmeri bíla sem framleiddir eru fyrir Ameríkumarkað að svokölluðu VIN númeri, en það verður að vera hægt samkvæmt lögum þar í landi. Slíkir bílar eru yfirleitt með tvö númer í kerfum Mercedes-Benz, þetta Ameríska VIN númer og svo hið Evrópska FIN númer. Evrópubílar eru bara með FIN númer og það er ekki hægt að lesa neinn aldur út úr þeim númerum. Til að gá að smíðadegi þarf umboðsaðili að fara inn í likilorðavarið kerfi hjá MB og gá að þessum degi. Til er eitthvað af vefsíðum þar sem þessar upplýsingar er einnig hægt að finna. Man ég þá eftir þessari Rússneskru klúbbsíðu þar sem hægt var að finna takmarkaðar upplýsingar um svona, en hversu réttar þær voru skal látið kjurt liggja.
http://www.mbclub.ru/mb/vin/?lng=eng
Þegar þetta framleiðslunúmer WDB20102410007133 er sett inn í FDOK kerfi Mercedes-Benz kemur á daginn að bíllinn er afgreiddur út úr verksmiðjunni 17.02.1983.
