Verkefnið mitt E420 W124

#1
Sælir,

Nú er ég loksins að láta verða að því að pósta þessum. Er búinn að vera að vinna í þessum hægt og rólega í rúmlega ár.

Þegar ég fékk hann var komið smá ryð í hann en skipting og vél rosalega góð nema það átti til að koma undirlyftutikk í hann þegar hann náði hita. Ég keyrði hann mjög lítið þegar hann hagaði sér þannig en hann átti til að vera með frekar lágan olíuþrýsting í lausagangi þegar hann hafði náð fullum hita, c.a. 0,7 - 1,5bar, sem er reyndar í lagi og innan marka samkvæmt leiðbeiningum frá Benz, en um leið og maður gaf í þá rauk þrýstingurinn upp. Ég lagaði það og hann hefur ekki gefið frá sér svo mikið sem eitt tikk síðan og olíuþrýstingur fer aldrei neðar en 1,5 bar með 5w30 olíu.

Ryðið í bílnum þurfti að laga og lét ég sprauta hliðarnar á honum til að byrja með og skottið svo seinna. Stuðarinn á honum var í maski og því keypti ég annan stuðara og lét sprauta hann. Verst að ég á ekki myndir af honum áður en þetta var gert en hér koma nokkrar myndir af honum eins og hann er í dag:

[img]http://i.imgur.com/qhcU6h.jpg[/img]

[img]http://i.imgur.com/2W3N6h.jpg[/img]

[img]http://i.imgur.com/l7HcCh.jpg[/img]

Þessi bíll er svo mikil snilld að keyra... eins og að svífa á skýi, hann er svo þéttur og hann finnur ekki fyrir brekkum.

Svo djúphreinsaði ég hann all svakalega um daginn og tók nokkrar myndir fram í:

[img]http://i.imgur.com/IUmXrh.jpg[/img]

[img]http://i.imgur.com/9Eq7Ph.jpg[/img]

[img]http://i.imgur.com/TnJIOh.jpg[/img]

Næst á dagskrá er að klára húddið, kaupa nýtt stefnuljós og setja listan og merkið á skottið.

Þegar ég keypti hann þá fýlaði ég ekki þessa innréttingu en hún hefur unnið mikið á og eftir að hafa djúphreinsað hann þá er hún bara nokkuð flott. Hún virðist vera töluvert slitsterk því að slitið á bílstjórasætinu hefur enn ekki látið sjá sig.
Seinast breytt af joolli þann 23 Ágú 2012, 00:51, breytt 4 sinnum alls.


Re: Verkefnið mitt E420 W124

#3
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/E420raudur/DSC02807.JPG[/img]

Er alltaf hrifinn af litnum á honum.
Það væri geggjað að dekkja rúðurnar örlítið niður.

En mikið er fínt að sjá appelsínugula dæmið horfið.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#4
Hlynzi skrifaði:
Er alltaf hrifinn af litnum á honum.
Það væri geggjað að dekkja rúðurnar örlítið niður.

En mikið er fínt að sjá appelsínugula dæmið horfið.
Heheh... þetta var vægast sagt skrítin viðgerð, þó hún væri eflaust gerð til bráðabirgða. Ég er sammála með litinn, mér finnst hann hrikalega flottur og hann hefur náð mjög mikilli dýpt eftir að hann var sprautaður. Að tinta rúðurnar aðeins kæmi mjög vel út. Kannski maður geri það einhverntíman.

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#6
Frábært að sjá þennan vagn gert hátt undir höfði. :tumbsup2: Þetta er, að ég held, eini E420 bíllin sem ég hef tekið í. Mér fannst hann einmitt alveg magnaður í akstri og merkilega þéttur. Þessi innrétting er náttúrlega bara tær snilld og kemur ekki á óvart að það sé ekki komið gat á þennan týpíska stað í bílstjórasætinu, þar sem þetta eru velúr sæti (minnir mig). Þau þóttu vandaðri, flottari (hjá þjóðverjum allavega) og dýrari en leðursæti. Þessi rauði litur er alltaf flottur á w124. 8)
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#7
JBV skrifaði:Þau þóttu vandaðri, flottari (hjá þjóðverjum allavega) og dýrari en leðursæti. Þessi rauði litur er alltaf flottur á w124. 8)
Þetta er reyndar langlíf mýta með að þetta áklæði hefði verið dýrara en leður :wink:

En þetta er að mínu mati einn fallegasti litur sem til hefur verið á Benz.
Fer einstaklega vel á 124 línunni sem og W140 8)
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#8
Takk fyrir jákvæð orð í garð höfðingjans! ;)

Já, hann vinnur rosalega. Það hefur eitthvað verið gert við pústið í honum, tekið innan úr hvarfanum eða eitthvað sem gerir það að verkum að hann öskrar verulega þegar honum er gefið inn. Ég veit ekki hvort sú breyting hafi leyst einhverja hesta en það virkar þannig þegar V8 öskrið kemur fram. :D

Ég hef einmitt heyrt þetta með innréttinguna. Sumir segja að hún hafi verið dýrari, aðrir jafn dýr og leður. Eitt er víst að hún lætur ekki rífa sig auðveldlega. :)

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#9
joolli skrifaði: Ég hef einmitt heyrt þetta með innréttinguna. Sumir segja að hún hafi verið dýrari, aðrir jafn dýr og leður. Eitt er víst að hún lætur ekki rífa sig auðveldlega. :)
Á afrit af "original" verðlista frá Daimler-Benz þegar sem sýna að þetta áklæði er ekki dýrara en leður ;) En það er gott að sitja í þessu samt sem og það virðist endast betur í bíltstjórasætinu en hið hefðbundna :tumbsup2:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#10
Benni skrifaði:Á afrit af "original" verðlista frá Daimler-Benz þegar sem sýna að þetta áklæði er ekki dýrara en leður ;)
Gaman að sjá þetta! :) ...verðmunurinn hefur samt ekki verið mikill.

Það er áberandi þegar maður skoðar mobile.de hvað þjóðverjinn virðist hafa valið velour frekar en leður í dýrari týpurnar. W126 SEC er t.d. í miklum mæli með velúr frekar en leðri :roll:
Sveinn