Re: Verkefnið mitt E420 W124

#11
Þetta fer nú eiginlega að vera off-topic í þessum þræði :oops:
sveinn skrifaði:Gaman að sjá þetta! :) ...verðmunurinn hefur samt ekki verið mikill.

Það er áberandi þegar maður skoðar mobile.de hvað þjóðverjinn virðist hafa valið velour frekar en leður í dýrari týpurnar. W126 SEC er t.d. í miklum mæli með velúr frekar en leðri :roll:
Gæti vel ímyndað mér að þetta hafi eitthvað með kulda/hita að gera. Velour er miklu þægilegra að setjast í t.d. þegar það er kalt í veðri, og líklega sama gildir ef það er heitt.
Leðursæti geta t.d. verið mjög óþægileg í kulda, a.m.k. er það mín upplifun. Hefur svo sem ekki mikið að segja ef menn eru með sætishitara en það var nú alltaf svo að bílarnir fengjust með slíkum "lúxus". Á sjálfur japanskan jeppa sem er leðraður en sætishitararnir einhverja hluta vegna bilaðir svo að það þarf flísteppi á botninn ef maður ætlar ekki að koma of stirður í vinnuna :roll:


Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#13
JBV skrifaði:Mín reynsla er sú að leðursæti án sætishitara eru :tumbsdown2: Kynntist því allt of vel í fyrravetur :lol:
Sammála, leðursæti eiga alltaf að vera með sætishitara!!!
(og allir bílar með loftkælingu en það er önnur saga :lol: )

En "back-to-topic" : elska þennan lit á þessum E420 bíl :tumbsup:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#15
Takk fyrir þetta Gunnar! Gaman að sjá þetta svona svart á hvítu. Ég átti alltaf erfitt með að trúa þessum orðrómi. Velour-ið er eins og þið segir mjög paktískt, það leiðir hita mjög illa og því er það gott bæði á sumrin og veturna. Þjóðverjinn er rosalega praktískur og meðvitaður um hagkvæmni svo að ég gæti vel trúað að það skýrir vinsældirnar eins og þið talið um. Leðrið er náttúrulega ískalt á meðan sætishitararnir eru að hita sætið.
Svo er annað... ég veit ekki hvort það hafi neitt með velour-ið að gera, en sætin sjálf, þ.e.a.s pullurnar, eru ennþá stífar; semsagt eins og nýjar. Aðrir W124 sem ég hef átt og verið svipað keyrðir hafa verið með mikið slappari/þreyttari sætum. Ætli það hafi verið notað eitthvað annað í velour púðana?

Re: Verkefnið mitt E420 W124

#16
joolli skrifaði:Takk fyrir jákvæð orð í garð höfðingjans! ;)

Já, hann vinnur rosalega. Það hefur eitthvað verið gert við pústið í honum, tekið innan úr hvarfanum eða eitthvað sem gerir það að verkum að hann öskrar verulega þegar honum er gefið inn. Ég veit ekki hvort sú breyting hafi leyst einhverja hesta en það virkar þannig þegar V8 öskrið kemur fram. :D

Ég hef einmitt heyrt þetta með innréttinguna. Sumir segja að hún hafi verið dýrari, aðrir jafn dýr og leður. Eitt er víst að hún lætur ekki rífa sig auðveldlega. :)
Ég sendi pabba með hann í pústviðgerð og það endaði þannig að hvarfakúturinn var hreinsaður að innan að öllu leiti, þeir eru einfaldlega til vandræða þegar þeir komast á aldur.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is