Ég er með E220 '94 sem varð allt í einu leiðinlegur í hægagangi, flöktir og gengur of hægt, og drepur á sér stundum.
Atvikaðist þannig að ég var að flýta mér í vínbúðina fyrir lokun
Hann gengur annars fínt eins og venjulega, nema í hægagangi. Eitt sem ég tók eftir er að olíuþrýstingsmælirinn flöktir í leiðinni, og fer lægra en hann var vanur að gera í hægagangi áður. En samt er hann alveg í þremur á inngjöf.
Hugmyndir?