Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011

#1
Stóri Mercedes Benz Gelanderwagen hittingurinn 2011

Reykjavík-Landmannalaugar-Reykjavík
Fimmtudagurinn 2.júní (Uppstigningardagur)-Laugardagurinn 4.júní.

Jæja nú er komið að því að sjá hvað það eru margir svona bílar færir til notkunar utan höfuðborgarinnar.
Farin verður þessi ferð með það í huga að láta sem allra flesta Mercedes Benz G bíla á sama stað á sama tíma. Ekki erum við neinir sérfræðingar í að skipuleggja hálendisferðir þar sem undirritaður (Gunnar) hefur aldrei komið sjálfur inn í Landmannalaugar, en nú skal gera bragarbót úr því.
Allar ábendingar varðandi ferðatilhögun eða staði til að heimsækja eru vel þegnar.
Allavega er grunnhugmyndin að lagt verði af stað frá Shell við Vesturlandsvegi fimmtudaginn 2.júní kl.10.00. Þaðan verður ekið eftir þjóðvegi 1 að landvegamótum, og þaðan upp í Hrauneyjar og þaðan á áfangastað.
Aðalkvöldið verður föstudagskvöldið 3.júní, þá væra gaman að grilla saman, þó hver með sitt grill og mat, en sem allra flestir á sama svæðinu. Afgangurinn af helgini gæti farið í einhverjar ferðir í kring um svæðið?

Með G-ð kveðju Gunnar Örn Hjartarson og Bjarni Þorgilsson S.897-4585 & 772-7722


w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965

Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011

#8
Einsi skrifaði:Ágætu menn

Það er bara að fagna þessu framtaki en mig langar að benda skipuleggjendum á að vegurinn inn í Landmannalaugar er yfirleitt lokaður fram undir miðjan júní og verður að öllum líkindum ófær 2. júní vegna drullu og snjóa.

mbk

Einar
Sæll

Takk fyrir þetta. Ferðaklúbburinn 4x4 var reyndar með ferð á vegum Litlunefndar þangað um síðustu helgi, og þá komust flestir. Ég trúi því nú varla að einum og hálfum mánuði frá deginum í dag verði enþá ófært þangað.
En ef svo fer þá færum við okkur bara einhvað annað, aðalatriðið er að láta þessa vagna og ökumenn þeirra hittast.
Þú hlýtur nú að komast ,ertu ekki á 38"?
w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965

Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011

#10
Það getur vel verið að það verði búið að opna. En mig minnir að t.d. árið 2006 var ekki opnað fyrr en rétt fyrir 17. júní og þá bara inn í Laugar, ekki austur úr. Ég hafði fyrir sið að fara alltaf fyrstu helgi sem var opnað og það var oft ekki fyrr en um miðjan júní. Ég fór einu sinni inneftir í lok maí, 29. maí minnir mig á 38 tommu jeppa og við sátum pikkföst í sandpytti í það skiptið.
38 tommu jepparnir fara náttúrulega flest en málið er að litlu jepparnir skemma miklu meira, grafa niður veginn og svoleiðis. Ekkert gaman að skemma mikið, nóg er maður búinn að horfa upp á fjórhjól og krossara fara hamförum þarna innfrá.