Stóri Mercedes Benz Gelanderwagen hittingurinn 2011
Reykjavík-Landmannalaugar-Reykjavík
Fimmtudagurinn 2.júní (Uppstigningardagur)-Laugardagurinn 4.júní.
Jæja nú er komið að því að sjá hvað það eru margir svona bílar færir til notkunar utan höfuðborgarinnar.
Farin verður þessi ferð með það í huga að láta sem allra flesta Mercedes Benz G bíla á sama stað á sama tíma. Ekki erum við neinir sérfræðingar í að skipuleggja hálendisferðir þar sem undirritaður (Gunnar) hefur aldrei komið sjálfur inn í Landmannalaugar, en nú skal gera bragarbót úr því.
Allar ábendingar varðandi ferðatilhögun eða staði til að heimsækja eru vel þegnar.
Allavega er grunnhugmyndin að lagt verði af stað frá Shell við Vesturlandsvegi fimmtudaginn 2.júní kl.10.00. Þaðan verður ekið eftir þjóðvegi 1 að landvegamótum, og þaðan upp í Hrauneyjar og þaðan á áfangastað.
Aðalkvöldið verður föstudagskvöldið 3.júní, þá væra gaman að grilla saman, þó hver með sitt grill og mat, en sem allra flestir á sama svæðinu. Afgangurinn af helgini gæti farið í einhverjar ferðir í kring um svæðið?
Með G-ð kveðju Gunnar Örn Hjartarson og Bjarni Þorgilsson S.897-4585 & 772-7722
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#2BIG LIKE á þetta 
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71
Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG
BMW 735i e32 árg. 1989
Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222
http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND
Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG
BMW 735i e32 árg. 1989
Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222
http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#3Sammálagmg skrifaði:BIG LIKE á þetta
Verður "bastörðum" hleypt með ?
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019
GSM:6990019
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#4Bastörðum ??? Ertu að spá í að taka einhvern vin þinn með sem við þekkjum ekki ? 
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722
S 772-7722
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#5Á við blikk-bastarða af annari tegund.Gizmo skrifaði:Bastörðum ??? Ertu að spá í að taka einhvern vin þinn með sem við þekkjum ekki ?
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019
GSM:6990019
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#6Að sjálfsögðu eru allir vagnar velkomnir, hvort þeir eru með stjörnu eður ei.
w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965
w111 220 SEb/C 1965
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#7Ágætu menn
Það er bara að fagna þessu framtaki en mig langar að benda skipuleggjendum á að vegurinn inn í Landmannalaugar er yfirleitt lokaður fram undir miðjan júní og verður að öllum líkindum ófær 2. júní vegna drullu og snjóa.
mbk
Einar

#8SællEinsi skrifaði:Ágætu menn
Það er bara að fagna þessu framtaki en mig langar að benda skipuleggjendum á að vegurinn inn í Landmannalaugar er yfirleitt lokaður fram undir miðjan júní og verður að öllum líkindum ófær 2. júní vegna drullu og snjóa.
mbk
Einar
Takk fyrir þetta. Ferðaklúbburinn 4x4 var reyndar með ferð á vegum Litlunefndar þangað um síðustu helgi, og þá komust flestir. Ég trúi því nú varla að einum og hálfum mánuði frá deginum í dag verði enþá ófært þangað.
En ef svo fer þá færum við okkur bara einhvað annað, aðalatriðið er að láta þessa vagna og ökumenn þeirra hittast.
Þú hlýtur nú að komast ,ertu ekki á 38"?
w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965
w111 220 SEb/C 1965
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#9...þetta er líka spurning um hvenær vegirnir eru opnir/lokaðir.
Nyrðri leiðin eða Fjallabak um Sigöldu til Landmannalauga er að meðaltali opnuð 1. júní, en Landmannaleið um Dómadal opnar sennilega ekki fyrr en viku síðar eða 8. júní. Þetta gæti því hafist, en er vissulega pínu tæpt eins og Einar bendir á.
Sjá hér:
http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Fil ... sleida.pdf

Sveinn
Re: Stóri Gelanderwagen hittingurinn 2.júní 2011
#10Það getur vel verið að það verði búið að opna. En mig minnir að t.d. árið 2006 var ekki opnað fyrr en rétt fyrir 17. júní og þá bara inn í Laugar, ekki austur úr. Ég hafði fyrir sið að fara alltaf fyrstu helgi sem var opnað og það var oft ekki fyrr en um miðjan júní. Ég fór einu sinni inneftir í lok maí, 29. maí minnir mig á 38 tommu jeppa og við sátum pikkföst í sandpytti í það skiptið.
38 tommu jepparnir fara náttúrulega flest en málið er að litlu jepparnir skemma miklu meira, grafa niður veginn og svoleiðis. Ekkert gaman að skemma mikið, nóg er maður búinn að horfa upp á fjórhjól og krossara fara hamförum þarna innfrá.