keypti einn w201 um daginn.
Ekki er nú hægt að segja að útlitið hafi verið það sem heillaði. Hafði greinilega ekki verið þrifinn síðan 2000 og eitthvað. Búið að stela af honum númerunum, kominn langt framyfir á skoðun, ógreidd bifr.gjöld, tryggingar os.frv.
Leit semsagt út fyrir að vera alger búðingur.
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
EN --- þegar ég keyrði kvikindið þá var augljóst að þarna var á ferðinni helv. fínt eintak.
Mjög þéttur í akstri, smurþrýstingur góður og skiptingin eins og draumur.
Þurfi bara mikið TLC til að gera hann góðan.
Byrjaði á því að leigja svona græju til að hreinsa sæti, teppi, hurðaspjöld - ja alla innréttinguna;
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Því bíllinn var vægast sagt ógeðslegur, sbr. þetta;
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Eyddi svo einni helgi í að djúphreinsa og gera fínan að innan (ekki viss um að ég myndi nenna svona aftur
Ljósi punkturinn í því var að hann skipti um lit að innan, varð grár að nýju.
Gerði hann svo kláran fyrir skoðun, pantaði númer, skipti um bremsur að framan og aftan, og sennilega flest allar perur sem hægt var að skipta um því þær voru flestar sprungnar
Kem með myndir síðar af total útkomunni, þegar ég er búinn að þrífa/massa kvikindið