190E 2.0 1991

#1
Sælir,
keypti einn w201 um daginn.
Ekki er nú hægt að segja að útlitið hafi verið það sem heillaði. Hafði greinilega ekki verið þrifinn síðan 2000 og eitthvað. Búið að stela af honum númerunum, kominn langt framyfir á skoðun, ógreidd bifr.gjöld, tryggingar os.frv.
Leit semsagt út fyrir að vera alger búðingur.

[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]

EN --- þegar ég keyrði kvikindið þá var augljóst að þarna var á ferðinni helv. fínt eintak.
Mjög þéttur í akstri, smurþrýstingur góður og skiptingin eins og draumur.
Þurfi bara mikið TLC til að gera hann góðan.

Byrjaði á því að leigja svona græju til að hreinsa sæti, teppi, hurðaspjöld - ja alla innréttinguna;

[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]

Því bíllinn var vægast sagt ógeðslegur, sbr. þetta;

[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]

Eyddi svo einni helgi í að djúphreinsa og gera fínan að innan (ekki viss um að ég myndi nenna svona aftur :? )
Ljósi punkturinn í því var að hann skipti um lit að innan, varð grár að nýju.

Gerði hann svo kláran fyrir skoðun, pantaði númer, skipti um bremsur að framan og aftan, og sennilega flest allar perur sem hægt var að skipta um því þær voru flestar sprungnar :? Skolaði svo af honum mesta ógeðið að utan og renndi í skoðun (fékk grænan útaf brotnum gormi - That's it) :)

Kem með myndir síðar af total útkomunni, þegar ég er búinn að þrífa/massa kvikindið 8)

Árni Garðarsson
300E 4matic '91
500E '93 ---- GONE :(

" There are 2 types of cars in the world, Mercedes and all others! "

Re: 190E 2.0 1991

#3
gmg skrifaði:Það gat ekki verið að þú yrðir Benz laus lengi 8) , hvar fannstu þennan ?

Til lukku með hann og ég bíð spenntur eftir fleiri myndum :wink:
Já Gunni, þetta er fíkn - mjög góð meira að segja 8)
Þessi var auglýstur á veraldarvefnum, nánar tiltekið á er.is
Árni Garðarsson
300E 4matic '91
500E '93 ---- GONE :(

" There are 2 types of cars in the world, Mercedes and all others! "

Re: 190E 2.0 1991

#4
FatBoy skrifaði:

Sammála, góð veiki :clapping:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222

http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: 190E 2.0 1991

#7
Alpina skrifaði:W201 eru VIRKILEGA góðir bílar
Þessi verður sennilega aldrei eins góður og bíllinn sem tengdafaðir þinn keypti af mér á sínum tíma, en hann verður vonandi nálægt því :wink:
Árni Garðarsson
300E 4matic '91
500E '93 ---- GONE :(

" There are 2 types of cars in the world, Mercedes and all others! "