Já það er ekki allir hér sem vita að ég á einn rosalega grænan w116 Benz.....
....oftast kallaður "Græni" en stundum "M-733"
[img]http://www.fotothing.com/photos/4e3/4e3 ... 278441.jpg[/img]
[img]http://www.fotothing.com/photos/5d4/5d4 ... aea835.jpg[/img]
[img]http://www.fotothing.com/photos/aff/aff ... ec37b8.jpg[/img]
[img]http://www.fotothing.com/photos/4cd/4cd ... 67d76d.jpg[/img]
[img]http://www.fotothing.com/photos/767/767 ... f3396f.jpg[/img]
[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]

Bíllinn er þokkalegur miðað við þá staðreynd að hann er óuppgerður.
Þó þarf að skipta út allavega öðru frambrettinu og laga annað afturbretti sem er mjög illa farið undir krómboganum. Sílsar eru lélegir. Bíllinn hefur smá dalað í útliti undanfarin ár (vetrargeymslan er ekki nógu góð) og er manni verulega farið að langa í uppgerð.
Bíllinn er 4ja gíra beinskiptur, með hinni klassísku M110 vél ; sem er 2,8 L - línu sexa - sem skilar 185 hestöflum og 240 nm togi.
4ja gíra beinskiptingin skilar þessu ansi skemmtilega út á vegi en er ekki fólki bjóðandi innanbæjar.
Út á vegi er hægt að ná honum niður í 10 L / 100 km.
Hann fór með eitthvað um 11 L / 100 km í síðustu bíladagaferð.
Fjöðrunin er einstaklega mjúk og þægileg, og fátt er betra en að líða um þjóðvegina í þessum bíl. En þegar hann þarf að takast á við hringtorg á mikilli ferð eða þessháttar óþarfa hindrannir þá slaknar talsvert á gæðum þessarar fjöðrunar.
Bíllinn er ekinn 277.000 km í dag.
w116 - Mercedes Benz 280 SE '80
#1Ásgeir Yngvi Ásgeirsson
W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin
W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin