w116 - Mercedes Benz 280 SE '80

#1
Já það er ekki allir hér sem vita að ég á einn rosalega grænan w116 Benz.....

....oftast kallaður "Græni" en stundum "M-733"

[img]http://www.fotothing.com/photos/4e3/4e3 ... 278441.jpg[/img]

[img]http://www.fotothing.com/photos/5d4/5d4 ... aea835.jpg[/img]

[img]http://www.fotothing.com/photos/aff/aff ... ec37b8.jpg[/img]

[img]http://www.fotothing.com/photos/4cd/4cd ... 67d76d.jpg[/img]

[img]http://www.fotothing.com/photos/767/767 ... f3396f.jpg[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]

Bíllinn er þokkalegur miðað við þá staðreynd að hann er óuppgerður.
Þó þarf að skipta út allavega öðru frambrettinu og laga annað afturbretti sem er mjög illa farið undir krómboganum. Sílsar eru lélegir. Bíllinn hefur smá dalað í útliti undanfarin ár (vetrargeymslan er ekki nógu góð) og er manni verulega farið að langa í uppgerð.

Bíllinn er 4ja gíra beinskiptur, með hinni klassísku M110 vél ; sem er 2,8 L - línu sexa - sem skilar 185 hestöflum og 240 nm togi.

4ja gíra beinskiptingin skilar þessu ansi skemmtilega út á vegi en er ekki fólki bjóðandi innanbæjar.

Út á vegi er hægt að ná honum niður í 10 L / 100 km.
Hann fór með eitthvað um 11 L / 100 km í síðustu bíladagaferð.

Fjöðrunin er einstaklega mjúk og þægileg, og fátt er betra en að líða um þjóðvegina í þessum bíl. En þegar hann þarf að takast á við hringtorg á mikilli ferð eða þessháttar óþarfa hindrannir þá slaknar talsvert á gæðum þessarar fjöðrunar.

Bíllinn er ekinn 277.000 km í dag.

Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: Mercedes Benz 280 SE '80

#2
Þessi er svo fallegur. Mikið finnst mér leiðinlegt að hafa aldrei fengið að sitja í honum eða jafnvel séð hann með berum augum, hvað er málið með það Ásgeir :evil:

Farðu að safna fyrir uppgerð á honum, það þýðir ekki að láta hann hægt og rólega veslast upp.

Ég tók mynd af mínum líka, sjáðu bara :)

[img]http://i41.tinypic.com/zk1mdi.jpg[/img]
Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn

Re: Mercedes Benz 280 SE '80

#4
Já Tjörvi þú færð nú efluast að sjá hann á hitting í sumar ;)
En já varðandi uppgerðina... maður hlýtur nú að finna sér pening til að byrja sem fyrst. Ég á bara engan skúr sem ég get notað í uppgerð. Er með hann í kaldri skemmu þar sem þrengsli eru mikil. Skúrleysið er mín aðal afsökun á því að vera ekki byrjaður.

En já Þórður þessi innrétting þín er nú bara líklega í ruslinu :shock: Ég ætlaði að sækja hana í nesið en gleymdi því í nokkra daga og mér skilst að henni hafi verið hent, sem er mikil synd.

En mín er mjög góð fyrir utan bílstjórasætið.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: Mercedes Benz 280 SE '80

#5
Ásgeir Yngvi skrifaði:Já Tjörvi þú færð nú efluast að sjá hann á hitting í sumar ;)
En já varðandi uppgerðina... maður hlýtur nú að finna sér pening til að byrja sem fyrst. Ég á bara engan skúr sem ég get notað í uppgerð. Er með hann í kaldri skemmu þar sem þrengsli eru mikil. Skúrleysið er mín aðal afsökun á því að vera ekki byrjaður.

En já Þórður þessi innrétting þín er nú bara líklega í ruslinu :shock: Ég ætlaði að sækja hana í nesið en gleymdi því í nokkra daga og mér skilst að henni hafi verið hent, sem er mikil synd.

En mín er mjög góð fyrir utan bílstjórasætið.
Æji :(

Re: Mercedes Benz 280 SE '80

#9
Björgvin B skrifaði:Sammála JBV, stórglæsilegur bíll Ásgeir og með góða sögu !!

Já gleymdi að setja smá uppl. um sögu bílsins.

En bíllinn er fluttur til landsins árið 1987 og seldur í Borgarfjörðinn stuttu seinna. Þegar hann kemur á klakann er hann ekinn 150 þúsund km. Afi er sem sagt fyrsti eigandinn hér á eftir þeim sem flutti hann inn til að selja'nn. Pabbi á síðan bílinn og loks ég frá árinu 2004.

Svo er annað sem er frekar spes við bílinn. Hann er skráður 1.1. 1980 hér á landi en samt má sjá í bók í honum þar sem hann kemur í sitt fyrsta tékk út í Þýskalandi í lok árs 1979. (mig minnir að þetta hafi verið í ágúst eða sept)
Þannig að hann er nú eflaust 1979 módelið þó hann sé skráður '80 ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: Mercedes Benz 280 SE '80

#10
Er það ekki þannig með bíla sem eru fluttir inn notaðir að þá kemur í skráninguna hér á klakanum alltaf 01.01.19xx það árgerðarár sem bíllinn er skráður frá verksmiðju(þá framleiddur 1979 t.d en skráður 1980 árg) ? mig minnir að Ivar hér á spjallinu hafi skrifað um það þegar ég var að athuga með minn bíl.
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk