Atvinnubíladeild Öskju flytur að Krókhálsi 11

#1
Öll starfsemi Bílaumboðsins Öskju ehf., umboðs- og þjónustuaðila Mercedes-Benz á Íslandi, verður komin undir eitt þak í dag, mánudaginn 24. nóvember. Áður hafði fólksbíladeild fyrirtækisins verið flutt í nýja húsnæðið á Krókhálsi 11 og frá og með mánudeginum verður atvinnubíladeildin þar einnig til húsa.. Að sögn Leifs Arnar Leifssonar, framkvæmdastjóra Öskju, verður þetta til mikilla hagsbóta fyrir starfsemina og viðskiptavini sem nú eiga greiðan aðgang að þjónustu Öskju á einum stað.

“Við verðum með alla þjónustuna á einum stað í miklu betra rými en áður,” segir Leifur. Nýja húsnæðið er samtals um 5.000 fermetrar og öll vinnuaðstaða og aðbúnaður eins og best verður á kosið. “Við erum hér miðsvæðis en vorum í útjaðri höfuðborgarsvæðisins áður með atvinnubílaþjónustuna. Hér erum við í alfaraleið atvinnubíla á gatnamótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar og bjóðum upp á alhliða þjónustu fyrir sendibíla, vörubíla og rútur.”
Fólksbíladeild Mercedes-Benz ásamt KIA á Íslandi var flutt af Laugaveginum í nýja húsnæðið á Krókhálsi í septemberbyrjun. Þessi tvö vörumerki njóta þess í dag að búa að stórum og björtum sýningarsal auk þess sem nú býðst afbragðs sýningaraðstaða fyrir Mercedes-Benz atvinnubíla.

“Við getum núna í fyrsta skipti boðið upp á góða sýningaraðstöðu fyrir Mercedes-Benz sendibíla innandyra og gott sýningarrými fyrir alla atvinnubíla utandyra,” segir Leifur.
Með flutningnum færist líka öll varahlutaþjónusta á einn stað en hún var á tveimur stöðum áður. Einn sameiginlegur varahlutalager er nú fyrir fólksbíla og atvinnubíla.

Rúmlega 50 manns vinna hjá Öskju. Í flota Mercedes-Benz á Íslandi eru um 2.500 atvinnubílar og tæplega 5.000 fólksbílar.


Með kveðju

Starfsfólk Öskju

#4
Hlynzi skrifaði:Mér finnst bara mistök að skella KIA umboðinu með þarna í Öskju batterýiið.
Það skiptir engu máli, tekur hvort sem er engin eftir KIA þegar þeir labba inn í Öskju, allt morandi í Benzum, hver helduru að horfi á einhverjar KIA bifreiðir eða hluti tengda þeim? :)
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#5
Ég óska Öskju til hamingju með nýju aðstöðuna :clapping:

Hún var klárlega byggð með Mercedes-Benz í huga svo að það er gott að þetta góða vörumerki er formlega komið í húsið :D

Það að Kia fylgi með skiptir að mínu mati Benz eigendur engu máli enda ekki bein samkeppni þar á milli :wink:. Ef það skýtur tryggari stoðum undir reksturinn þá er það bara hið besta mál enda skiptir það okkur Benz eigendur mestu máli, í þessu fámenna þjóðfélagi, að baki vörumerkinu sé traustur aðili.
Benedikt Hans Rúnarsson

#8
Ztebbsterinn skrifaði:Hvað er Kia?
Allaveg ekki farsími eða gúmmístígvél...

Það er No-Kia
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)