Öll starfsemi Bílaumboðsins Öskju ehf., umboðs- og þjónustuaðila Mercedes-Benz á Íslandi, verður komin undir eitt þak í dag, mánudaginn 24. nóvember. Áður hafði fólksbíladeild fyrirtækisins verið flutt í nýja húsnæðið á Krókhálsi 11 og frá og með mánudeginum verður atvinnubíladeildin þar einnig til húsa.. Að sögn Leifs Arnar Leifssonar, framkvæmdastjóra Öskju, verður þetta til mikilla hagsbóta fyrir starfsemina og viðskiptavini sem nú eiga greiðan aðgang að þjónustu Öskju á einum stað.
“Við verðum með alla þjónustuna á einum stað í miklu betra rými en áður,” segir Leifur. Nýja húsnæðið er samtals um 5.000 fermetrar og öll vinnuaðstaða og aðbúnaður eins og best verður á kosið. “Við erum hér miðsvæðis en vorum í útjaðri höfuðborgarsvæðisins áður með atvinnubílaþjónustuna. Hér erum við í alfaraleið atvinnubíla á gatnamótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar og bjóðum upp á alhliða þjónustu fyrir sendibíla, vörubíla og rútur.”
Fólksbíladeild Mercedes-Benz ásamt KIA á Íslandi var flutt af Laugaveginum í nýja húsnæðið á Krókhálsi í septemberbyrjun. Þessi tvö vörumerki njóta þess í dag að búa að stórum og björtum sýningarsal auk þess sem nú býðst afbragðs sýningaraðstaða fyrir Mercedes-Benz atvinnubíla.
“Við getum núna í fyrsta skipti boðið upp á góða sýningaraðstöðu fyrir Mercedes-Benz sendibíla innandyra og gott sýningarrými fyrir alla atvinnubíla utandyra,” segir Leifur.
Með flutningnum færist líka öll varahlutaþjónusta á einn stað en hún var á tveimur stöðum áður. Einn sameiginlegur varahlutalager er nú fyrir fólksbíla og atvinnubíla.
Rúmlega 50 manns vinna hjá Öskju. Í flota Mercedes-Benz á Íslandi eru um 2.500 atvinnubílar og tæplega 5.000 fólksbílar.
#2
Mér finnst bara mistök að skella KIA umboðinu með þarna í Öskju batterýiið.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226
Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
#4
Það skiptir engu máli, tekur hvort sem er engin eftir KIA þegar þeir labba inn í Öskju, allt morandi í Benzum, hver helduru að horfi á einhverjar KIA bifreiðir eða hluti tengda þeim?Hlynzi skrifaði:Mér finnst bara mistök að skella KIA umboðinu með þarna í Öskju batterýiið.
Halldór Björn
Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;Olbogi skrifaði:ef þú ættir svona væri hann bilaðurvaldi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér![]()
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna...
#5
Ég óska Öskju til hamingju með nýju aðstöðuna
Hún var klárlega byggð með Mercedes-Benz í huga svo að það er gott að þetta góða vörumerki er formlega komið í húsið
Það að Kia fylgi með skiptir að mínu mati Benz eigendur engu máli enda ekki bein samkeppni þar á milli
. Ef það skýtur tryggari stoðum undir reksturinn þá er það bara hið besta mál enda skiptir það okkur Benz eigendur mestu máli, í þessu fámenna þjóðfélagi, að baki vörumerkinu sé traustur aðili.
Hún var klárlega byggð með Mercedes-Benz í huga svo að það er gott að þetta góða vörumerki er formlega komið í húsið
Það að Kia fylgi með skiptir að mínu mati Benz eigendur engu máli enda ekki bein samkeppni þar á milli
Benedikt Hans Rúnarsson
#6
Hvað er Kia?
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

#8
Allaveg ekki farsími eða gúmmístígvél...Ztebbsterinn skrifaði:Hvað er Kia?
Það er No-Kia
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...