Sun Nóv 25, 2007 3:16 am
Á þessum tímapunkti eru margir leigubílstjórar annaðhvort önnum kafnir við farþegaflutninga, enda liðið nokkuð á aðfarnótt sunnudagsins, eða þeir séu í fasta svefni! Svo er einnig sá möguleiki að menn séu að lyfta sér upp með misgóðum árangri. Ef menn eru hressir og ánægðir með kvöldið, eftir að hafa fengið sér í tánna. Þá er þeir aðillar nú yfirleitt ekki að agnúast út í aðra. Svo eru þeir til sem einhverra hluta vegna lenda á einhverjum bömmer, eftir nokkra gráa og reyna að koma höggi á hina og þessa til að fá útrás fyrir biturð sína.
En þetta var bara útúrdúr og hugleiðing af minni hálfu, sem hefur lítið með þann "nafnlausa" að gera. Enda veit ég ekki hver hann er, frekar en margir aðrir hér á spjallinu. Þ.a.l get ég varla farið að dæma þann mann sem ég þekki hvorki haus né sporð á.
