Mercedes 600SEL á bland.is

#1
Þetta er ekki mikið verð :shock: Allavega m.v. það sem búið er að gera fyrir bílinn :?
mercedes 600SEL til sölu!!Tilboð um helgina 1.100.000!!!!
mjög vel með farinn bíll, lakk og innrétting sem nýtt, mikið endurnýuð bifreið en þarf aðeins að vinna í honum svo sem bremsur að aftan. Bíllinn er um 450 hestöfl og 600 newton í tog!! Ný dekk nýtt púst nýir demparar að aftan og nýir gormar allan hringinn. Allt nýtt í kringum vélina.Bíllinn eyðir ekki nema 11L á langkeyrslu.. Rosalega flottur bíll á góðu verði og áhugasamir geta haft samband í síma 7762674.
Guðmundur
Það er búið að gera bílinn upp fyrir ca.3.000.000 síðustu 3 ár.Án efa flottasti 600sel á landinu
https://bland.is/classified/entry.aspx? ... Id=1502474" onclick="window.open(this.href);return false;


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Mercedes 600SEL á bland.is

#5
Er ekki málið að það kostar formúgu að gera við heddpakkninguna ... ef ein er farin, hvað á þá hin langt eftir ... og fyrst á að taka báðar, þá er það tímagír/reimar, strekjarar ... og eitthvað er bíllinn ekinn svo það endar með hringjum, legum, olíudælu .... Það þarf sem sé að lyfta 12cyl benz vél úr, taka upp með öllu tilheyrandi og koma í aftur ... $$$
Erlingur Bjarnason

Re: Mercedes 600SEL á bland.is

#6
Er það ekki yfirleitt reyndin með W140 með fullorðins mótorunum, ef eitthvað í þeim krefst endurnýjunnar þá kostar það "hönd og fót" ? :(

Aftur á móti er fátt sem stenst þessum kerrum snúninginn þegar þær eru í lagi. 8)
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Mercedes 600SEL á bland.is

#8
Það vantar alveg árgerðina og kílómetrastöðuna en þetta er allavega pre-facelift bíll, sennilega einn af þeim elstu.

heddpakkningar í línusexunum frá þessum tíma eru allar gallagripir og sjálfsagt það sama í gangi þegar búið er að sjóða saman 2 sexur eins og í V12 600. Eini munurinn á sexu og þessu er að þarna fer að leka á amk fjórum stöðum í stað tveggja. Þetta eru hrikalegir kaggar, en ekki fyrir aðra en þá sem geta gert við sjálfir að eiga þetta.

Þessir 6 púststútar eru það fyrsta sem ég myndi rífa undan þessum bíl ásamt því að setja orginal grillið í, finnst alveg fatalt þegar menn eru bæði með stjörnu í grillinu og svo aðra ofan á húddinu.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: Mercedes 600SEL á bland.is

#9
Gizmo skrifaði:Þessir 6 púststútar eru það fyrsta sem ég myndi rífa undan þessum bíl ásamt því að setja orginal grillið í, finnst alveg fatalt þegar menn eru bæði með stjörnu í grillinu og svo aðra ofan á húddinu.
Hjartanlega sammála þessu tvennu! :lol:
Sveinn

Re: Mercedes 600SEL á bland.is

#10
sveinn skrifaði:
Gizmo skrifaði:Þessir 6 púststútar eru það fyrsta sem ég myndi rífa undan þessum bíl ásamt því að setja orginal grillið í, finnst alveg fatalt þegar menn eru bæði með stjörnu í grillinu og svo aðra ofan á húddinu.
Hjartanlega sammála þessu tvennu! :lol:

Fyrsta sem að ég hugsaði þegar að ég sá þessar myndir :tumbsup:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND