Faðir og sonur á eins ML jeppum

#1
Ég er nú ekki mikið að því að pósta fréttum af liðsmönnum Liverpool FC að öllu jöfnu. En þessi frétt fannst mér nú samt eiga erindi hingað. :D

Tekið af 433.is
Í dag setti Nuri Sahin, miðjumaður Liverpool, ansi skemmtilegar myndir inn á Twitter síðu sína.

Myndirnar eru af tveimur eins Mercedes Benz jeppum sem hann og ungur sonur hans keyra, en annar þeirra er skiljanlega talsvert minni en hinn.

Þá er bíllinn hans Sahin yngri að vísu einnig blæjubíll, en þeir feðgar eru ansi svalir á þessum keimlíku bifreiðum.

Þessar fyndnu, og okkur leyfist að segja krúttlegu, myndir má sjá hér að neðan.


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019