Verðmunur á varahlutum á Íslandi og Spáni

#1
Þannig er að ég fór til Spánar nú í vor og ákvað að kaupa varahluti í djásnið mitt sem er MB E-200 (211) árg. 2003. Ég fór í MB umboðið í Torrevieja og bað um bremsuljósið í skottlokinu og 8 felgumiðjur (4 gráar með krómstjörnunni og 4 bláar með lárviðarkransinum og stjörnunni). Klukkan var að verða 6 á föstudegi þegar ég kom í búðina og bað um þetta. Afgreiðslumaðurinn sagði að því miður þá ætti hann þetta ekki til en það væri til í umboðinu í Madrid og bað mig að koma milli kl 12 & 13 daginn eftir (laugardag) og þá hefði hann þetta til fyrir mig. Ég kom svo rúmlega 12 daginn eftir og þá voru hlutirnir tilbúnir á borðinu hjá honum. Þegar til kom þá var enginn flutningskostnaður á þessu hjá þeim.
Þá kemur þetta skemmtilega.
Verð á Spáni: ljósið um 23.000 krónur,ódýrari felgumiðjan um 1.020 krónur (stk) og dýrari miðjan um 1.700 krónur(stk). Þetta gera tæpar 34.000 krónur
Ég hringdi í Öskju á föstudeginum og þetta er verðið sem þeir gáfu mér: Ljósið rúm 37.000 kr, ódýrari miðjan rúmar 2.500 kr. og dýrari miðjan rúmar 4.500 kr. Þetta gera um 65.000 krónur.
Sjálfsagt er einhver tollur og gjöld á þessu en álagningin er örugglega þó nokkur en ég sparaði mér allavegana rúmar 30.000 krónur á þessu.

Langaði bara að deila þessu hér með ykkur.

Kv.

Árni Gunnars.


Kveðja,
Árni Gunnarsson
865-1051
e-mail: ebox@hive.is
Gott er að hafa tvær húfur í rigningu til að forðast sólsting.
M B 190E 1993 dökkgrár seldur MN-735
M B C-180 2000 dökkrauður seldur AM-800
M B C-320 2001 svartur (USA) seldur KX-748
M B E-200 kompressor 2003 grár

Re: Verðmunur á varahlutum á Íslandi og Spáni

#3
Björgvin skrifaði:þetta er ALLTOF mikill munur finnst mér því miður.....
Reyndar ekki. Það er ekki ódýrt að senda aðalljós til Íslands. Svo koma aðflutningsgjöldin og virðisaukaskattur ofan á allt saman.

Í þessu tilfelli borgaði þetta sig því það var hægt að koma með þetta án alls aukakostnaðar. En það borgar sig örugglega ekki að gera sér ferð.

Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við búum í miðju Atlantshafi.

Flutningur fyrir svona ljós slagar í 5.000.- og þá eru gjöldin eftir. Það leyfir ekki mikið fyrir álagningu í verðmun upp á 14.000.-

Ég á vin í Slóveníu og hefur hann athugað fyrir mig verð hjá MB þar (oftar en einu sinni)og það hefur ekki borgað sig fyrir mig að fá það sent þaðan. Ódýrara að kaupa það í Öskju.

Smá dæmi:

Varahlutur: 10.000.-
Sendingarkostnaður: 3.000.-
Samtals: 13.000.-
Vörugjald (18%) 2.340.-
Samtals: 15.340.-
Virðisauki: 3.912.-

Alls samtals: 19.252.- 92.52% kostnaður

Það er reglan hjá mér að bæta við 80-100% við verð á hlutum sem ég sé á Ebay t.d.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Verðmunur á varahlutum á Íslandi og Spáni

#4
Mér finnst ekkert að því að borga sendingarkostnað af varahlutum eða öðru sem ég panta frá evrópu.

En þegar verð er að rukka mann um toll, vsk og vörugjöld af vörunni, þá hugsa ég alltaf um þá staðreynd að Ísland er eina eða eitt af fáum löndum í evrópu sem rukkar ofangreind gjöld af póstsendingum. Þetta er hægt að afnema með liggur við einu pennastriki enda er þetta hluti af EES reglugerð.

Það er dapurlegt :cry:
Eyjólfur Karlsson
--------------------------------------
Mercedes Benz 250S 1968 R42095
Mercedes Benz 290GDT 1985 R16377

Re: Verðmunur á varahlutum á Íslandi og Spáni

#5
eyjok skrifaði:Mér finnst ekkert að því að borga sendingarkostnað af varahlutum eða öðru sem ég panta frá evrópu.

En þegar verð er að rukka mann um toll, vsk og vörugjöld af vörunni, þá hugsa ég alltaf um þá staðreynd að Ísland er eina eða eitt af fáum löndum í evrópu sem rukkar ofangreind gjöld af póstsendingum. Þetta er hægt að afnema með liggur við einu pennastriki enda er þetta hluti af EES reglugerð.

Það er dapurlegt :cry:
Var að kaupa hugbúnað frá Microsoft.com yfir netið fyrir kunningja minn og sá að verðið hafði hækkað um 25,5% - sem reyndist vera íslenskur vaskur sem fyrirtækið augljóslegar er farið að rukka okkur um.
Benedikt Hans Rúnarsson