Bifreiðargjöld of hátt reiknað ?

#1
Ég er með Chrysler Crossfire sem er með MB m112 vél, 3,2L 215HP (218HP samkvæmt MB).

Var að fá reikning inná heimabankann uppá 33.577Kr.-... borgaði um 18.000 í Júní í fyrra fyrir BMW 325i 04' (192HP)

Mér leist nú ekkert á þetta og fór að gramsa á vefnum og fann reiknivel fyrir bifreiðagjöld á netinu:
http://www.rikisskattstjori.is/reiknive ... jald_1.asp" onclick="window.open(this.href);return false;

Setti inn CO2 (g/km) tölur bæði það er Chrysler gefur út og síðan það sem Mercedez gefur út fyrir R170 SLK 320 (Þeir eru líka með m112 vélina)

Chrysler: 243 CO2 + 1348Kg = 20.977Kr.-
MB : 254 CO2 + 1377Kg = 22.363Kr.-

Ekki einusinni nálægt því Hr. Ríkisskattstjóri.

Hefur einhver hérna lent í þessu ?
Ætli það sé einhver möguleiki að fara þangað og fá þetta leiðrétt ?

-Jónas


Re: Bifreiðargjöld of hátt reiknað ?

#2
Sennilega er bíllinn ekki með skráða mengun í bifreiðaskrá og því er áætlað á hann !
Sem á við flesta bíla sem eru fluttir inn af einstæklingum.

Myndi kanna þetta , og ef þú getur sýnt gögn um mengun þá ætti að vera hægt að láta breyta þessu !

En ef hann er með skráða mengun í skoðunarvottorði ,þá er þetta bara rangt hjá þeim og ætti ekki mikið mál að láta leiðrétta!
Kveðja
Guðmundur R.


W201 ´90
Ford Focus

Re: Bifreiðargjöld of hátt reiknað ?

#3
Ronny skrifaði:Sennilega er bíllinn ekki með skráða mengun í bifreiðaskrá og því er áætlað á hann !
Sem á við flesta bíla sem eru fluttir inn af einstæklingum.

Myndi kanna þetta , og ef þú getur sýnt gögn um mengun þá ætti að vera hægt að láta breyta þessu !

En ef hann er með skráða mengun í skoðunarvottorði ,þá er þetta bara rangt hjá þeim og ætti ekki mikið mál að láta leiðrétta!
Já, fletti upp bílnum á http://www.us.is" onclick="window.open(this.href);return false; og á bílnum mínum er ekki skráð CO2 losun samkvæmt þeirra bókum.
Og sennilega engum Crossfire þá :/

Djöfull fæ ég gott karma ef ég leiðrétti þetta fyrir alla... 10 Crossfire-ana hérna á Íslandi :lol:

Re: Bifreiðargjöld of hátt reiknað ?

#4
Þetta er huge mál að leiðrétta :(
'Eg var mer Range Rover dísil árg 2003 í fyrra innfluttur notaður og ekki með skra co2 í skráningarskirteininu,umboðið gat ekki hjálpað mér eftir margt ítrekaðar tilraunir.
Þú þarft að eiga við umferðastofu(spaugstofu) um þetta mál,ég kom með útskrift á 8 skráðum RR dísil með skráð co2,enn það dugði ekki,umferðastofa vildi fá þetta staðfest frá framleiðanda sem IH gat ekki gert fyrir mig.
Allavega verður gaman að fylgjast með hvernig þér gengur með þetta
Kv Gummi
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

Re: Bifreiðargjöld of hátt reiknað ?

#5
það er víst aðeins hægt að fá þessar upplýsingar yfir evrópumarkaðs framleidda bíla hjá einhverjum framleiðendum (og að sjálfsögðu Mercedes-Benz), ekki td bíl sem er evrópskur og fluttur inn notaður frá USA. Þeim verður ekki breytt í co2/km.

Ekki öfunda ég þá sem eiga USA spec F350 SuperDuperDuty í dag........
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: Bifreiðargjöld of hátt reiknað ?

#6
GUMMCO skrifaði:Þetta er huge mál að leiðrétta :(
'Eg var mer Range Rover dísil árg 2003 í fyrra innfluttur notaður og ekki með skra co2 í skráningarskirteininu,umboðið gat ekki hjálpað mér eftir margt ítrekaðar tilraunir.
Þú þarft að eiga við umferðastofu(spaugstofu) um þetta mál,ég kom með útskrift á 8 skráðum RR dísil með skráð co2,enn það dugði ekki,umferðastofa vildi fá þetta staðfest frá framleiðanda sem IH gat ekki gert fyrir mig.
Allavega verður gaman að fylgjast með hvernig þér gengur með þetta
Kv Gummi
Já, ég hringdi í spaugstofuna áðan og maðurinn sagði að ég þyrfti að beita fram hreinum og beinum sönnunargögnum að það rétta sé nú rétt.

Ekkert Chrysler umboð á íslandi, finn ekkert á Chrysler.com um Crossfire og ekki á Google annað en svona frá 3rd party fyrirtæki eða heimasíðu sem er með svona skráð en er ekki nógu sterk rök.

:(

Re: Bifreiðargjöld of hátt reiknað ?

#7
kHRYZTAL skrifaði:Ég er með Chrysler Crossfire sem er með MB m112 vél, 3,2L 215HP (218HP samkvæmt MB).

Var að fá reikning inná heimabankann uppá 33.577Kr.-... borgaði um 18.000 í Júní í fyrra fyrir BMW 325i 04' (192HP)

Mér leist nú ekkert á þetta og fór að gramsa á vefnum og fann reiknivel fyrir bifreiðagjöld á netinu:
http://www.rikisskattstjori.is/reiknive ... jald_1.asp" onclick="window.open(this.href);return false;

Setti inn CO2 (g/km) tölur bæði það er Chrysler gefur út og síðan það sem Mercedez gefur út fyrir R170 SLK 320 (Þeir eru líka með m112 vélina)

Chrysler: 243 CO2 + 1348Kg = 20.977Kr.-
MB : 254 CO2 + 1377Kg = 22.363Kr.-

Ekki einusinni nálægt því Hr. Ríkisskattstjóri.

Hefur einhver hérna lent í þessu ?
Ætli það sé einhver möguleiki að fara þangað og fá þetta leiðrétt ?

-Jónas

Þetta meikar samt enganvegin sens með þennan reikning uppá 33.500, það borgar sig fyrir þig að hafa bílinn skráðan skv eiginþyngd, því bíll sem er 1350kg á að borga um 17.000 2x á ári ÓHÁÐ MENGUN meðan bíll sem mengar 243gr/km þarf að borga 20.977 2x á ári ÓHÁÐ EIGINÞYNGD.

Getur verið að þú sért að fá reikning skv HEILDARÞYNGD ?
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722