'I sambandi' við ökukennslu þráðinn hér rifjast upp fyrir manni hvernig bíl menn lærðu á
sjálfur lærði ég á 190D árg 1983 hvítan að lit með no R33333 og hét hann Vignir Sveinson sem kennti mér,enn hann er látinn í dag
Svo ég spyr ?
Hvernig bíl lærðu þið á?
Man ekkert hvað kennarinn hét, en ég og æskuvinur minn lærðum hjá sama kennara. Hann var iðulega að láta okkur keyra sig út um allan bæ í ýmsum persónulegum erindagjörðum, mjög sérstakt Man líka eftir því að hann þekkti annan hvern mann og var stöðugt með höndina uppi að vinka fólki
Annað sem er mér dálítið minnistætt svona eftirá; vinur minn hafði byrjað í tímum hjá þessum manni en ég var hálf áhugalaus og byrjaði miklu seinna. Hann var eitthvað að mæla með honum við mig og eitt af rökunum var hversu frjálslegur hann væri. Saga vinar míns til að sýna fram á ágæti kennarans var eitthvað á þá leið að hann hafi verið að keyra í tíma hjá honum austur eftir Hringbrautinni framhjá Umferðamiðstöðinni og hraðinn var víst kominn í eitthvað 160km/klst. Þá hafði kennarinn sagt hálf kæruleysislega; "Heyrðu, ...ætli það sé kannski ekki rétt að þú hægir aðeins á þér núna!". Hann var samt ekkert að stressa sig mikið yfir þessu sko, bara svona góðlátleg ábending til að taka til athugunnar við tækifæri. Eitthvað grunar mig að vinur minn hafi aðeins verið að ýkja og ekki alveg verið kominn með fullþroskaðar hugmyndir um tölurnar á hraðamælinum. Ég var samt alveg jafn grænn og hann, og þessi sannfærandi saga varð til þess að ég ákvað að byrja í tíma hjá þessum annars ágæta kennara. Ég hef í seinni tíð mjög gaman að því að segja þessa sögu og ekki síst innan um hóp fólks þegar þessi sami vinur minn er viðstaddur, honum til dálítils ama
Bjallan var sennilega nálægt 1975 módel, en þær voru samt miklu krafmeiri á þessum tíma
Þar sem pabbi var hættur að kenna (kenndi lengi á Ford bíla, Cortina og Escort) þá þurfti ég að leita annað. Var reyndar eini af mínum systkinum (erum 5) sem aldrei hafði keyrt fólksbíl í fjölskyldunni áður en ég fór að læra. Hafði þó bæði keyrt traktor & Land Rover (landbúnaðartæki ) í sveitinni
Lærði á W201 190D 2,5.
Ökukennari: Magnús Helgason heitinn sem var frábær ökukennari.
Magnús var mikill Benz maður, skipti yfir í W124 250D sem leit nánast alveg eins út og 190 bíllinn. Vínrauðsanseraður með spoiler-kitti. Báðir voru ótrúlega flottir bílar hjá honum.
Að sjálfsögðu valdi ég bílinn (vildi læra á Benz) en Magnús var kunningi pabba og pabbi vildi nú ekki að ég lærði á "hvað sem er" né hjá "hverjum sem er"
Seinast breytt af Benni þann 07 Nóv 2011, 12:55, breytt 1 sinni alls.