Steikt áhugamál (og plássfrekt)

#1
Kannski að deila þessu sérstaka áhugamáli, síðustu árin hef ég verið safna vintage spilakössum, safnið samanstendur af 30 kössum, 15 pinball og 15 arcade kössum.

Bílskúrinn er gjörsamlega troðinn þessa stundina, helling af dóti og 7 pinball kassar. Það verður allavega nóg að gera í vetur. Má eiginlega segja að þetta sé algjört draumaáhugamál, blanda af járni, mekkaníki, rásum, transistorum, timbri, málningu, ryki og ryði.

Það er búið að vera mikið bras að leita kassana uppi, auglýsa á auglýsingavefjunum ásamt fréttablaðinu, síðan er að koma þeim í hús. Þá byrjar fjörið að sjá hvað er að og hvaða varahluti vantar. Það er ekkert grín að finna suma hluti, en nánast allir slithlutir eru auðfundnir. Kassarnir eru tiltölulega basic, á sínum tíma lærði ég rafeindavirkjun, kláraði sveinsprófið en vann svo aldrei að viti í faginu nema að klára samninginn. Þannig þetta er fínasta heads up í því dóti. Tíminn sem fer í hvern kassa er frá þrem dögum upp í 1-2 mánuði, bara svona dunda sum kvöld. Það er mjög sterkt í þessu ameríska dóti, sumir kassana hafa hreinlega verið í tætlum. Hingað til hef ég eingöngu verið að vinna í pinball kössunum, eftir áramót er planið að vinna í arcade kössunum. Sumir fara reyndar eflaust á haugana.

Hér er grein sem birtist í mogganum síðustu helgi, veit ekki alveg með fyrirsögnina en hitt er fínt :)

Annars er hugmyndin að leigja þá út næstu árin til að hafa upp í einhvern kostnað.. ef þú kæri lesandi[smá plögg hérna] veist um starfsmannaaðstöðu eða hentuga staðsetningu þá endilega láta mig vita. Hér er yfirlit fyrir alla kassana..

[img]http://i411.photobucket.com/albums/pp20 ... n/pins.jpg[/img]

[img]http://i411.photobucket.com/albums/pp20 ... ba_jam.jpg[/img]



Í framtíðinni er síðan hugmyndin að koma sér upp smá spilasal, en það er allmörg ár í það :)



[img]http://i411.photobucket.com/albums/pp20 ... cade_2.jpg[/img]


G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: Steikt áhugamál (og plássfrekt)

#3
Skemmtilega góð symmetría í bílskúrnum varðandi aldur bíla og spilakassa.

Pælið samt í þróuninni, núna get ég spilað alla leikina sem hægt var að fá (talið í spilakössum) á gsm símann !
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Steikt áhugamál (og plássfrekt)

#4
Hlynzi skrifaði:Skemmtilega góð symmetría í bílskúrnum varðandi aldur bíla og spilakassa.

Pælið samt í þróuninni, núna get ég spilað alla leikina sem hægt var að fá (talið í spilakössum) á gsm símann !
Note to self: Farsímar eru nær útdauðir og illfinnanlegir í verslunum í dag, þetta eru orðnar meira eða minna lófatölvur.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: Steikt áhugamál (og plássfrekt)

#5
andrz skrifaði:
Hlynzi skrifaði:Skemmtilega góð symmetría í bílskúrnum varðandi aldur bíla og spilakassa.

Pælið samt í þróuninni, núna get ég spilað alla leikina sem hægt var að fá (talið í spilakössum) á gsm símann !
Note to self: Farsímar eru nær útdauðir og illfinnanlegir í verslunum í dag, þetta eru orðnar meira eða minna lófatölvur.
Já, minn er 600 mhz tölva...með innbyggðum síma (sem er eflaust minnsta einingin af honum) Og mörg þúsund sinnum meira minni en þarna þekktist.

Hlýtur að vera pirrandi að vera yfirmaður t.d. IBM og koma með frægar setningar eins og 64k verður nóg minni fyrir hvaða tölvu sem er.
http://www.youtube.com/watch?v=-M5DR_AU6fw" onclick="window.open(this.href);return false;
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Steikt áhugamál (og plássfrekt)

#9
Þetta minnir mig á spilasalinn hans pabba í Skipholtinu,við vorum með 50 kassa og skúrinn heima var troðfullur af spilakössum,hrikalega gaman fyrir 13 ára strák :D
Fór í verksmiðjunna í Englandi 1983 (Taitel) og var hrikalega gaman,þessir kassar kostuðu handlegg og meira,man eftir einum bílakassa sem var keyptur að hann kostaði þá 1983 eitthvað um 900 þús sem var þónokkur peningur þá!! Meðal verð á svona kassa var 250 til 350 plús ef ég man rétt,þá kostaði Daihatsu charade um 220 þús+ ef ég man rétt,
Væri gaman að sjá þessa kassa einhvern daginn :)
Flott framtak að geyma svona
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO
cron