Við áttum langt og gott samtal og hann skildi hvað ég var að fara , og vildi hann fá tillögu hjá mér með þetta , þar sem ég stakk upp á því að hann miðaði til dæmis skoðun fornbíla á miðju sumri (þá hefðu menn enga afsökun ) T.d eftir skoðunardag Fornbílaklúbbsins .
En ég ætla nú ekki að grobba mig af þessu , en nú eru allir fornbílar með breytta skráningu og þurfa ekki að fara í skoðun fyrr en 1 júli , það ár sem þeir eiga að fara í skoðun(óháð bílnr.) ! Og kemur því ekkert vanrækslugjald lengur um miðjan vetur !
Ég verð að hrósa Sýslumanninum í Bolungarvík fyrir frábæran skilning og góðri viðleitni í þessu máli okkar fornbílaeiganda !