Sérkennilegur samanburður á eyðslu bifreiða

#1
Mér finnst svolítið skondið þegar menn bera saman eyðslu á annarri bílategund samanber hér:
HAMAR skrifaði:Var að koma úr rúntinum Reykjavík - Akureyri - Reykjavík í samfloti með Toyotu Land Cruiser dísil '05
og mér til mikillar ánægju (og furðu) þá eyddi X5 minna eldsneyti en L.C.
X5 var fór með 10.7 l/100km. en L.C. fór með 11.8 l/100
Eknir voru 970 km.
770 km. á þjóðvegi 1 og 200 km. innanbæjar á Akureyri.

V8 bensín for the win :tumbsup:
Og engar aðrar upplýsingar.

Landcruiser? Er það litli eða stóri, eða jafnvel FJ70. Hvað voru margir í hverjum bíl. Var mikill farangur? Voru báðir á upprunalegu dekkjunum?

Hvor skyldi hafa eytt minna per kíló per 100 kílómetra?

En engu að síður er þetta ekki mikil eyðsla fyrir stóra bíla.


Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Sérkennilegur samanburður á eyðslu bifreiða

#4
Hübner skrifaði:Hahahaha vel jarðað HAMAR :tumbsup: :tumbsup:
Jarðað hvernig? Hann veitti bara nánari og betri upplýsingar um bílana og gerir með því samanburðinn marktækari en ekki fullkominn.

Spurning hvað þeir eyddu miðað við þyngd t.d.. Hef grun um að Landcruiser sé þyngri.

Allavega virkar hann stærri á myndinni.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Sérkennilegur samanburður á eyðslu bifreiða

#5
Þetta er í raun það sem maður hefur séð áður. BMW er gerður til að ferðast á góðum þjóðveg og hefur miklu meira afl en þarf til þess, vélin erfiðar aldrei og hann líður bara áfram í rólegheitum.

Cruiser er ekki með allt of mikið vélarafl þótt það dugi vel en vélin í honum er klárlega að puða talsvert meira en í BMW til að halda ferðahraða, en hann hefði pottþétt vinningin ef þetta hefði verið 700km innanbæjar og 200 á þjóðveg.

Stórar vélar eru hagkvæmar á rólegri langkeyrslu en vondar í innanbæjarsnatti.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: Sérkennilegur samanburður á eyðslu bifreiða

#6
BaraBenz skrifaði:
Hübner skrifaði:Hahahaha vel jarðað HAMAR :tumbsup: :tumbsup:
Jarðað hvernig? Hann veitti bara nánari og betri upplýsingar um bílana og gerir með því samanburðinn marktækari en ekki fullkominn.

Spurning hvað þeir eyddu miðað við þyngd t.d.. Hef grun um að Landcruiser sé þyngri.

Allavega virkar hann stærri á myndinni.
Toyota LC 3.0 L diesel er 1990 kg og BMW X5 4.4 L er 2225 kg
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Sérkennilegur samanburður á eyðslu bifreiða

#9
Jú það stemmir , þetta er 4.4 lítra V8 í BMW-inum mínum.
BMW-inn er að eyða rúmum 15 l/100km. hjá mér í innanbæjarakstrinum
en Land Cruiserinn er að eyða rúmum 13 l/100km.
Einhvern veginn reiknaði maður með að munurinn á eldsneytis eyðslunni væri meiri en þetta.
Sigurður HAMAR Pétursson 897-5576
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
BMW 225xe

Re: Sérkennilegur samanburður á eyðslu bifreiða

#10
Ég renndi norður á Akureyri í viku sumarfrí með fjölskylduna, 2 fullorðnir, 3 börn - reyndar 3 fullorðnir og 3 börn svona 3-400 kílómetra af þeim rúmlega 1.500 eknum

2007 Dodge Ram 1500 4x4 QuadCab V8 5,7 HEMI bensín 345hp 508Nm Laramie útgáfa með öllu shittinu.
Bíllinn viktar 2,6 tonn og það hefur ekki verið undir 300 Kg af fólki og farangri, reyndar held ég að í heildina hafi allt saman verið nærri 3 tonnum.
Eyðsla var 12,1 - 13,1
Hann var á 12,1-12,5 á leið norður en tifaði uppá við í snattinu og svo haugaroki í mótvind á suðurleið og endaði í 13,1.
Erlingur Bjarnason
cron