[img]http://www.musclecars.is/stuff/poster.jpg[/img]
Næstkomandi Miðvikudagskvöld, 15. September nk. kl. 20.00 ætla Kvartmíluklúbburinn og Íslenski Mustang klúbburinn að taka höndum saman og sýna, í aðeins eitt skipti, kvikmyndina "Gone in 60 Seconds" frá árinu 1974.
Sýningin fer fram í Sal 1 í Laugarásbíó kl. 20.00 og er miðaverð aðeins 1.000 kr. og rennur ágóði af söluandvirði miðans til Kvartmíluklúbbsins.
Allir sem hafa einhvern áhuga á bílum og kvikmyndum vita hvaða mynd þetta er, en í henni er 40 mínútna bílaeltingarleikur sem er einn sá þekktasti sem sögur fara af. Myndin var endurgerð árið 2000 og fóru þá Nicholas Cage og Angelina Jolie með aðalhlutverkin.
Aðeins eru um 300 miðar í boði þannig að það er eins gott að hafa hraðar hendur.
Hægt er að kaupa miða í forsölu með því að leggja 1.000kr. inn á reikning KK,
sem er 1101-26-111199 Kt.660990-1199 og framvísa kvittun á staðnum.
Gott er að gefa sér góðan tíma og mæta tímanlega fyrir sýningu, og er fólk á "Sparibílum" er sérstaklega hvatt til að mæta og mynda skemmtilega stemningu fyrir utan bíóið svona í lok sumars.
Ef þetta gengur vel eftir er mikill möguleiki á að þetta verði endurtekið og þá með annari gamalli bílamynd.
Látið orðið berast og sjáumst í bíó á Miðvikudagskvöldið!! Cool
Hægt er að nálgast .PDF auglýsingu hér, og prenta út.
Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.
#2Ég er búinn að lesa þetta nokkrum sinnum yfir en er ennþá að klóra mér í hausnum.
Á maður að leggja inná reikninginn og koma með kvittun á staðinn,
en svo er bara 300 manns sem kemst inn,
hvað ef að 500 manns borga og koma með kvittun, er það þá bara fyrstur kemur fyrstur fær ?
Á maður að leggja inná reikninginn og koma með kvittun á staðinn,
en svo er bara 300 manns sem kemst inn,
hvað ef að 500 manns borga og koma með kvittun, er það þá bara fyrstur kemur fyrstur fær ?
Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.
#3Ég var akkúrat að pæla í þessu!AM skrifaði:Ég er búinn að lesa þetta nokkrum sinnum yfir en er ennþá að klóra mér í hausnum.![]()
Á maður að leggja inná reikninginn og koma með kvittun á staðinn,
en svo er bara 300 manns sem kemst inn,
hvað ef að 500 manns borga og koma með kvittun, er það þá bara fyrstur kemur fyrstur fær ?
Furðulegt fyrirkomulag...
Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.
#4Við fylgjumst með heimabankanum,ef þetta fer að slaga í 200 í forsölu þá látum við vita tímalega 