Fornbílaklúbbur Íslands Nýliðakvöld

#1
Fékk þetta bréf frá Fornbílaklúbbnum og var beðinn að birta það hér !

Miðvikudagskvöldið 21.október næstkomandi verður nýliðavöld á Kaffíhúsinu Amokka í Hlíðarsmára í kópavogi kl. 20.00 og stendur til 23.00.
Þetta er fyrsta nýliðakvöld sem klúbburinn heldur og er tilgangurinn að kynna þeim sem hafa áhuga á klúbbstarfinu það sem fer fram í nefndum klúbbssins og hvernig kjarnastarfsemin er uppbyggð.
Á þessu kvöldi koma formenn og nefndarmenn úr öllum nefndum klúbbssinns og kynna stafsemi nefnda, verða til svara um starfið, og getur fólk kynnt sér áhugavert starf og boðið fram krafta sína.

Einnig er þetta tilvalin vetvangur til að bera upp hugmyndir sem menn eru búnir að vera með í maganum lengi og vilja koma þeim á framfæri.



Starf klúbbsinns er til dæmis:



-Bílageymslunefnd
-Ferðanefnd

-Bílnúmeranefnd

-Ritnefnd

-Útgáfa skilaboða

-Sögu og minjanefnd

-Rekstur kranabíls

-Byggingarnefnd

-keppnis og dómnefnd

-Félaga og gagnanefnd

-Kjörnefnd


Einnig verða sýndar ljósmyndir tengdar starfinu um leið.

Þetta verður allt með frjálslegu sniði og allir eru velkomnir hvort sem þeir eru félagar eða ekki.

Kvetjum alla til að kíkja í heimsókn.


Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND
cron