Re: Listamenn

#2
:evil: :evil: :evil: :realmad: :realmad: :realmad:

Óþolandi svona pakk sem eyðileggur dýra hluti í nafni "listarinnar".
Þeim hefði verið nær að nota peningana í eitthvað uppbyggilegt s.s. skóla í þróunarríkjunum, hreinsibúnað fyrir vatn eða eitthvað slíkt en að kaupa nýja Porsche bara til þess að eyðileggja hann.

Maður verður bara svakalega reiður að sjá svona meðferð á fjármunum :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Listamenn

#5
Ég hefði nú grátið yfir þessu hefði þetta verið benz. en þar sem að þetta var nú bara sport útgáfan af VW bjöllu. þá er þetta altí lagi
Kveðja Gísli.

Nissan Patrol 94 38" TRÖLLI
Nissan patrol 98 33 heimilis bíllinn
Dodge ram 5.9 cummins 93 HRÚTURINN
DODGE RAM HEMI MAGNUM 03 (djásnið) seldur :(
Benz 300D 1989 því miður seldur og og sé mikið eftir honum:(
Benz 190 1985 R.I.P

Re: Listamenn

#7
Labtec skrifaði:ég frétti eitthvað svoles var akkurat gert við benz í gamla daga hér á Íslandi, við finasta eintak af gömlum benz var mer sagt
Reyndar var kveikt í einum sem hafði tilheyrt þýska sendiráðinu.
Það var nefnilega ekki hægt að selja hann á íslenskum markaði út af gjaldeyrishaftabulli (eða einhverju slíku) og þar sem þjóðverjarnir voru ekkert að hafa fyrir því að flytja hann út aftur þá var bílnum fargað á öskuhaugunum með því að kveikja í honum :?
JBV birti einhverntímann mynd af þessu hérna á spjallinu.
Benedikt Hans Rúnarsson